ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ NÝJAST 23:45

Eboue sneri sjónvarpsmann í jörðina

SPORT

"Flug Falcons var fullkomið"

Vísir Erlent 22. maí 2012 23:49
Frá geimskotinu í dag.
Frá geimskotinu í dag. MYND/AP
Bandaríska fyrirtækið SpaceX braut blað í sögu geimferða í dag þegar Falcon 9 eldflaugin hóf sig á loft í Flórída. Um borð í flauginni er ómannað hylki, Dragon, en það mun flytja rúmlega 450 kíló af birgðum til Alþjóðlegum geimstöðvarinnar.

Hingað til hafa alþjóðlegar stofnanir og ríkisstjórnir séð um slík verkefni.

„Flug Falcons var fullkomið," skrifaði Elon Musk á samskiptamiðlinum Twitter en hann er stofnandi, stjórnarformaður og helsti hönnuður Falcon 9 eldflaugarinnar. „Dragon er nú á sporbraut um jörðu... Þungu fargi er af mér létt."

Seinna meir sagði Musk fjölmiðlum að hann væri afar stoltur af árangrinum: „Fyrir okkur er þetta eins og að vinna Super Bowl."

Musk, sem er fertugur, hefur komið að ýmsum verkefnum í gegnum tíðina. Hann var einn af stofnendum PayPal og var stærsti hluthafi fyrirtækisins þegar uppboðsvefsíðan eBay keypti það árið 2002.


MYND/AFP
Geimskotsins í dag var beðið með mikilli eftirvæntingu. Fyrir nokkrum dögum reyndi SpaceX að skjóta Falcon 9 eldflauginni á sporbraut en vegna bilunar þurfti að aflýsa geimskotinu — hálfri sekúndu áður en kveikja átti á eldflaugunum.

John Holdren, vísindaráðgjafi Barack Obama, Bandaríkjaforseta, óskaði Musk og samstarfsmönnum hans til hamingju í dag. „Hvert einasta geimskot er merkilegur áfangi, en þetta er sannarlega spennandi," sagði Holdren. „Þetta einkaframtak boðar nýja tíma hjá NASA og stofnunin mun nú geta einbeitt sér að því að sinna verkefnum sínum."

Frá því að NASA þurfti að snúa baki við geimferðaáætlun sinni fyrir nokkrum árum hefur stofnunin þurft að reiða sig á Geimferðastofnun Rússlands við að flytja birgðir og mannskap í Alþjóðlegu geimstöðina.

Á næstu dögum mun síðan Dragon-birgðahylkið tengjast geimstöðinni en NASA mun sýna beint frá þessum merka áfanganum.

Hægt er að sjá Falcon 9 geimflaugina hefja sig á loft í myndbandinu hér fyrir ofan.




Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Erlent 20. maí 2013 19:19

Beitti kærustuna ofbeldi og braut nálgunarbann

Leikarinn Edward Furlong handtekinn enn og aftur. Meira
Erlent 20. maí 2013 17:25

Komið í veg fyrir hryðjuverk í Moskvu

Tveir grunaðir hryðjuverkamenn felldir af sérsveitarmönnum Meira
Erlent 20. maí 2013 16:24

Á yfir höfði sér ákærur vegna misnotkunar

Hin átján ára gamla Kaitlyn Hunt frá Flórída átti í ástarsambandi við sér yngri stúlku. Meira
Erlent 20. maí 2013 15:03

Tveir létust í loftbelgsslysi í Tyrklandi

Einn loftbelgur rakst upp undir annan. Meira
Erlent 20. maí 2013 11:22

Sólin hefur góð áhrif á astma

Niðurstöður rannsóknar sýna að tengsl séu á milli lítils magns af D-vítamíni og verri einkenna astma. Meira
Erlent 20. maí 2013 10:45

Giftingar samkynhneigðra til umræðu í breska þinginu

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, hvetur flokksbræður sína til að samþykkja frumvarp. Meira
Erlent 20. maí 2013 10:30

Hamfarir í Oklahoma

Að minnsta kosti einn lést þegar skýstrókar fóru yfir smábæinn Shawnee í gær. Meira
Erlent 20. maí 2013 09:47

Að minnsta kosti þrjátíu látnir í eftir röð sprengjuárása í Írak

Átta sprengjur sprungu nærri strætóstöðvum og mörkuðum. Meira
Erlent 19. maí 2013 19:59

Bylting fyrir sjúklinga með lifrarbólgu C

Nýlegar rannsóknir benda til þess að 12 vikna meðferð geti læknað yfir 90% sjúklinga. Meira
Erlent 19. maí 2013 15:20

ESB bannar fjölnota olíukrúsir á veitingahúsum

Skálar og krúsir með alls kyns sósum og olíum, einkum og sér í lagi ólífuolíu heyra brátt sögunni til á veitingastöðum innan landa Evrópusambandsins. Meira
Erlent 19. maí 2013 13:53

20 drengir látist seinustu vikuna vegna umskurða

Um er að ræða frumstæðar aðgerðir sem framkvæmdar eru á hverju ári af ættbálkum í landinu. Meira
Erlent 19. maí 2013 12:54

Reyna að afnema „lög um afnám ofbeldis gegn konum"

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og núverandi formaður nefndar Sameinuðu þjóðanna - UN Women í Afganistan, fundaði í gær með forseta afganska þingsins þegar útlit var að ,,... Meira
Erlent 19. maí 2013 12:05

Norður-Kóra skaut eldflaug í átt að Japan

Rússneska fréttastofan Russia Today fullyrðir að Norður-Kóreumenn hafi í morgun skotið á loft eldflaug í tilraunarskyni. Meira
Erlent 19. maí 2013 09:42

Hungurverkfall í Guantanamo nú staðið í 100 daga

Mótmælendur mótmæla við Hvíta húsið og vilja láta loka hinu umdeilda Guantanamo fangelsi. Meira
Erlent 18. maí 2013 18:47

Segir kínverska ferðamenn til skammar fyrir Kína

Wang Yang, aðstoðarforsætisráðherra Kína, segir "ósiðlega hegðun" kínverja á ferðum sínum erlendis eyðileggja ímynd landsins. Meira
Erlent 18. maí 2013 13:35

Fyrsta fermingin í 30 ár hjá dönsku konungsfjölskyldunni

Í dag var prins Nikolai, sonur Jóakims prins, fermdur í Fredensborg Slotskirke. Þetta er fyrsta fermingin hjá dönsku konungsfjölskyldunni í 30 ár. Meira
Erlent 18. maí 2013 11:27

Loftsteinn sem skall á tunglinu olli risavaxinni sprengingu

Loftsteinn sem skall á tunglinu nýlega olli svo risavaxinni sprengingu að hægt var að sjá blossann af henni á jörðu niðri án sjónauka. Meira
Erlent 18. maí 2013 11:20

Nýir grunaðir í máli Madeleine McCann

Bresk lögregluyfirvöld segja nýja menn grunaða í máli Madeleine McCann, bresku stúlkunnar sem hefur verið týnd síðan 2007. Meira
Erlent 18. maí 2013 10:50

Cristoph Waltz hljóp af sviði vegna skothvella

Christoph Waltz hljóp úr myndveri við tökur á frönskum spjallþætti í beinni útsendingu þegar tveir skothvellir heyrðust og úr áhorfendahópnum heyrðist kallað að hleypt hefði verið af byssu. Meira
Erlent 18. maí 2013 08:30

Vilja fá forseta Ítalíu sem vitni í mafíumáli

Ákæruvaldið á Ítalíu vill kalla hinn tæplega 88 ára gamla forseta landsins, Giorgio Napolitano, fyrir sem vitni í komandi dómsmáli um leynisamninga sem hið opinbera gerði við mafíuna á síðasta áratug ... Meira
Erlent 18. maí 2013 08:00

Verðmætum skartgripum stolið í Cannes

Skartgripum fyrir tæplega 125 milljónir króna var stolið af hótelherbergi í Cannes aðfaranótt föstudags. Þjófarnir þekktu líklega vel til og voru skipulagðir, að sögn lögreglu. Þeir höfðu ekki fundist... Meira
Erlent 17. maí 2013 21:08

Beyoncé ófrísk

Söngstjarnan Beyoncé Knowles á von á sínu öðru barni með eiginmanni sínum rapparanum Jay-Z. Þetta hefur bandaríska slúðurfréttasíðan E! eftir nokkrum heimildarmönnum. Meira
Erlent 17. maí 2013 15:42

Erfitt að halda haus

Geimfarinn vinsæli, Chris Hadfield, aðlagast jörðinni smám saman eftir marga mánuði í geimnum. Meira
Erlent 17. maí 2013 13:36

Skartgriparán á kvikmyndahátíðinni í Cannes

Skartgripum að verðmæti 120 milljóna króna stolið af hóteli. Meira
Erlent 17. maí 2013 12:40

Tyrkland hættir við Eurovision vegna finnska kossins

Tyrklenska sjónvarpið hefur ákveðið að hætta við að sýna frá aðalkeppni Eurovison á morgun. Ástæðan ku vera ótti við að finnska söngkonan Krista Siegrids muni kyssa kvenkyns dansara í beinni útsendin... Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Fréttir / Erlent / "Flug Falcons var fullkomið"
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000