Innlent

„Fékk síðast skeyti núna í morgun“

Samúel Karl Ólason skrifar
„Því við lítum á þetta alvarlegum augum ef að skólar eru að hvetja nemendur til að taka ekki þátt.“
„Því við lítum á þetta alvarlegum augum ef að skólar eru að hvetja nemendur til að taka ekki þátt.“ Vísir/Vilhelm
„Það koma kvartanir af og til,“ segir Arnór Guðmundsson, forstöðumaður Námsmatsstofnunarinnar. „Ég fékk nú síðast skeyti núna í morgun.“ Vísir birti á föstudaginn frétt um sögu móður sem fékk símtal frá skólanum og var beðinu um að hringja son sinn veikan fyrir samræmdu prófin í fjórða bekk. Ef hann myndi taka prófin myndi hann upplifa sig sem heimskan.

„Hann brotnaði ekki niður í prófinu. Enginn ræddi við hann og ekkert gerðist, það átti bara að beita öllum ráðum til að hann myndi ekki mæta í prófin þar sem vitað var að hann myndi ekki fá yfir meðaleinkunn,“ skrifaði móðirin.

Í pistli sínum sagðist hún hafa lagt fram formlega kvörtun, en hún viti þó ekki hvað hafi orðið um hana.

„Ég verð að kanna hvað varð um þetta erindi hjá okkur og ætla síðan að ræða við ráðuneytið um hvernig eigi að bregðast við,“ segir Arnór. „Því við lítum á þetta alvarlegum augum ef að skólar eru að hvetja nemendur til að taka ekki þátt. Við viljum að allir taki þátt og þessi próf eru fyrir nemendur til að fá upplýsingar um sína stöðu.“

Hann segir mun á því hvort fólk sendi póst eða hringi, eða hvort að stofnuninni berist formleg kvörtun. Sem send er bæði á stofnunina og á ráðuneytið. Formlegar kvartanir hafa þó ekki verið margar. En þær hafa snúið bæði að því að skólar séu tregir til að láta börn þreyja próf og að foreldrar vilji það ekki.

Í ummælum við fréttina og pistilinn má sjá fólk sem segist hafa svipaða sögu að segja. Arnór segist gjarnan vilja fá að vita hvaða skóla um ræðir.

„Þá myndum við hafa samband við þá og óska skýringa. Þetta skekkir líka niðurstöður og gefur ranga mynd af stöðu skólanna,“ segir Arnór.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×