Innlent

„Fáum sýnishorn af vetri í þessari viku“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Það er smá vetur í kortunum í vikunni.
Það er smá vetur í kortunum í vikunni. Vísir/Pjetur
Búast má við því að snjói í flestum landshlutum næstkomandi miðvikudag og fimmtudag og þá spáir Veðurstofa Íslands frosti víðast hvar. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir því að það sé „útlit fyrir að við fáum sýnishorn af vetri í þessari viku,“ en landsmenn hafa ekki farið varhluta af því undanfarið að veður hefur verið nokkuð milt miðað við árstíma.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir annars að í dag megi búast við vestan strekkingi en hægari vindi norðan lands. Þá verða víða snjóél og hiti um frostmark en við ströndina um sunnanvert landið verður hlýrra og úrkoman í formi rigningarskúra. Það dregur svo úr úrkomu og vindi í kvöld.

„Í fyrramálið verður lægð skammt sunnan við land. Henni fylgir allhvöss austanátt sunnanlands með slyddu eða snjókomu og úrkoman færist síðan yfir á austanvert landið þegar líður á daginn og vindur verður norðlægari. Á Vesturlandi rofar til og gæti sést til sólar, sem er tilbreyting frá þokunni sem var um helgina,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar.

Veðurhorfur á landinu í dag og næstu daga:

Vestan 8-15 metrar í dag, en hægari vindur norðanlands. Víða él og hiti nálægt frostmarki, en skúrir við sjávarsíðuna á sunnanverðu landinu með hita að 5 stigum. Lægir víða í kvöld.

Austan og norðaustan 10-18 metrar á sekúndu og slydda eða snjókoma á morgun sunnan- og síðar austanlands. Norðaustan 8-13 metrar á sekúndu og úrkomulítið vestan- og norðvestanlands. Hiti kringum frostmark.

Á þriðjudag:

Austan og norðaustan 13-18 metrar á sekúndu sunnan- og austanlands og snjókoma, slydda eða rigning. Norðaustan 8-13 metrar á sekúndu og úrkomulítið vestan- og norðvestanlands. Hiti kringum frostmark.

Á miðvikudag og fimmtudag:

Austan- og suðaustanátt, yfirleitt á bilinu 8-15 metrar á sekúndu. Él eða snjókoma í flestum landshlutum og frost 0 til 5 stig.

Á föstudag:

Vaxandi suðaustan- og austanátt með úrkomu og hægt hlýnandi veðri. Víða hvassviðri og snjókoma undir kvöld, en rigning sunnanlands og frostlaust þar.

Á laugardag:

Hvöss austanátt á norðaverðu landinu framan af degi með snjókomu eða slyddu, en annars hægari sunnanátt með éljum eða slydduéljum. Hiti kringum frostmark.

Á sunnudag:

Útlit fyrir suðaustanátt með éljum, en bjart norðaustantil á landinu. Hiti um eða undir frostmarki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×