Innlent

„Erfitt að skynja ekki þöggunarmynstur í tengslum við þjóðhátíð“

Stefán Ó. Jónsson skrifar
#Þöggunar-myndirnar hafa vart farið fram hjá íslenskum Facebook-notendum.
#Þöggunar-myndirnar hafa vart farið fram hjá íslenskum Facebook-notendum. vísir
„Tilmæli um að upplýsa ekki um kynferðisbrot, jafnvel þótt eftir verði spurt, virðast í raun tilraun til að breiða yfir þá staðreynd að á Þjóðhátíð er kynferðisofbeldi viðvarandi vandamál og að hátíðarstjórnendur hafa aldrei gert nóg, né virst hafa áhuga á að gera nóg, til að vernda gesti sína gegn ofbeldismönnum.”

Þetta segja aðstandendur feminíska vefritsins Knúz ásamt meðlimum hópsins Aktivismi gegn nauðgunarmenningu í harðorðri yfirlýsingu sem birtist í kvöld á heimasíðu fyrrnefnds vefrits.

Tilefnið er fréttaflutningur Vísis af bréfi Páleyjar Borgþórsdóttur til viðbragðsaðila á Þjóðhátíð þar sem hún beindi þeim tilmælum til þeirra um að halda að sér upplýsingum um kynferðisbrot sem hugsanlega verði framin yfir hátíðina frá fjölmiðlum.

Þetta sagði lögreglustjórinn vera á þeim fosendum að það sé „þungbært fyrir aðila kynferðisbrots að málið sé á forsíðum blaðanna“.

Sjá einnig: Lögreglustjóri í Eyjum krefst þagnar um kynferðisbrot á þjóðhátíð 

Þetta telja bréfritararnir vera „undarlega stjórnsýsluákvörðun“ í ljósi umræðu síðustu mánaða. „Þolendur hafa rofið þögnina undir myllumerkjunum #þöggun og #konurtala og sagt frá kynferðisofbeldi sem samfélagið hefur ítrekað þaggað niður og reynt að hunsa,” segir í yfirlýsingunni.

Þar segir einnig að þessi röksemdafærsla lögreglustjórans verði að „teljast veik“ í ljósi þess að þarna virðist „enn eiga að reyna að sópa kynferðisofbeldi, umfangi þess og afleiðingum, undir teppið,“ eins og komist er að orði.

Þá segja þeir sem undirrita yfirlýsinguna að það sé erfitt að „erfitt að skynja ekki þöggunarmynstur í tengslum við Þjóðhátíð, sérstaklega eftir að stjórn hátíðarinnar lýsti því yfir fyrir nokkrum árum að starfsemi Stígamóta væru ekki lengur velkomin.”

Sjá einnig: Spyr hvort einnig eigi að þagga niður önnur brot

Knúz og Aktivismi gegn nauðgunarmenningu krefst þess að lögreglan í Vestmannaeyjum og viðbragðsaðilar á Þjóðhátíð þaggi ekki niður umræðu um kynferðisofbeldi sem og að sagt verði satt og rétt frá ef kynferðisbrotamál koma upp um helgina.

Yfirlýsinguna í heild sinni má lesa með því að smella hér en þar er meðal annars vísað til orða rithöfundarins Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur, sem lesa má hér að neðan. 

Hér eru skýlausir þöggunartilburðir settir fram með þeim rökum að það sé þolendum fyrir bestu, annað sé svo 'íþyngjandi“...

Posted by Þórdís Elva Þorvaldsdóttir on Wednesday, 29 July 2015

Tengdar fréttir

Spyr hvort einnig eigi að þagga niður önnur brot

Ráðgjafi hjá Stígamótum spyr hvað það sé við kynferðisbrot sem gerir þau þess virði að þagga niður. Þolendur séu einnig að öðrum brotum sem kunna koma upp á útihátíðum.

Telur bréfið í takt við kröfu Druslugöngunnar

Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, segir það að kynferðisbrotamál fari í fjölmiðla eigi ekkert skylt við það hvernig tekið er á þeim innan kerfisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×