Lífið

„Er hægt að vera með aprílgabb í maí?“

Birgir Olgeirsson skrifar
Wu-Tang Clan.
Wu-Tang Clan.
„Er hægt að vera með aprílgabb í maí?,“ spyr bandaríska rappsveitin Wu-TangClan á Facebook þar sem hún greinir frá því að viðburðir sveitarinnar sem voru afbókaðir á Facebook eru enn á dagskrá og þar á meðal tónleikar sveitarinnar á SecretSolstice í Reykjavík í júní.

Vísir greindi frá málinu í gærkvöldinu en margir aðdáendur sveitarinnar trúðu ekki eigin augum þegar tilkynning birtist þess efnis að sveitin hefði afbókað Secret Solstice-viðburð sveitarinnar á Facebook.

Kynningarfulltrúi hátíðarinnar, Ósk Gunnarsdóttir, greindi Vísi frá því að um mistök hefðu verið að ræða og Wu-TangClan væri sannarlega á leið til landsins. Nú hefur sveitin einnig staðfest að um mistök var að ræða.

Can we do an April fools in May? LOLThe Event dates for our tour that came up canceled are NOT canceled. They will be re-uploaded soon! Peace.See you soon fam. - Wu

Posted by Wu-Tang Clan on Saturday, May 2, 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×