Körfubolti

„Er dómaranefnd hæf til að taka ákvörðun um þetta mál?“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Menn voru ekki sáttir með niðurstöðu aganefndar.
Menn voru ekki sáttir með niðurstöðu aganefndar.
Brynjar Þór Björnsson kom mikið við sögu þegar KR vann ævintýralegan sigur á Tindastóli, 87-94, í 12. umferð Domino's deildar karla fyrir rúmlega viku síðan.

Brynjar fékk umdeilda óíþróttamannslega villu í 1. leikhluta. Hann var svo heppinn að fjúka ekki af velli þegar hann sló til Björgvins Hafþórs Ríkharðssonar snemma í 4. leikhluta.

Mikið hefur verið fjallað um málið í fjölmiðlum hér á landi en Brynjar Þór slapp alveg með refsingu eftir að aganefnd KKÍ tók málið fyrir.

Hér að neðan má sjá umræðuna um málið í Körfuboltakvöldinu á Stöð 2 Sport á föstudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×