Innlent

"Engin orð geta lýst sorginni“

Samúel Karl Ólason skrifar
Styrktarreikningur hefur verið stofnaður í nafni Andra Freys Sveinssonar, sem lést í Benidorm fyrr í vikunni. Andri Freyr Sveinsson lést af slysförum á Spáni mánudaginn 7. júlí síðastliðinn.

„Engin orð geta lýst sorginni sem ríkir hjá fjölskyldu hans þessa dagana,“
segir í tilkynningu frá sem barst til Vísis.

Til að létta undir með aðstandendum hefur verið stofnaður sérstakur styrktarreikningur í nafni Andra Freys.“

Þeir sem vilja styrkja fjölskyldu hans geta lagt inn á reikning í Íslandsbanka:



515- 14- 409610, kt. 220174-5229.


Tengdar fréttir

Vilja fá drenginn sinn heim

"Maður veit eiginlega ekki hvar maður á að byrja að lýsa svona ofboðslega jákvæðum og björtum dreng,“ segir Harpa Bryndís Brynjarsdóttir, móðir Andra Freys Sveinssonar

Ekki um mannleg mistök að ræða

Framkvæmdastjóri Terra Mítica útilokar þann möguleika að banaslysið sem átti sér stað þar á mánudag hafi orsakast af mannlegum mistökum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×