Viðskipti innlent

„Ekki vera hrædd við að gera heimskulega hluti“

Samúel Karl Ólason skrifar
Fjölmargir úr tölvuleikjaiðnaðinum sóttu Slush Play ráðstefnuna í Reykjavík.
Fjölmargir úr tölvuleikjaiðnaðinum sóttu Slush Play ráðstefnuna í Reykjavík. Mynd/Halldóra Ólafs
Fjölmargir úr tölvuleikjaiðnaðinum sóttu Slush Play Reykjavík ráðstefnuna sem lauk nú í gær. Þar mátti sjá forsvarsmenn íslenskra fyrirtækja sem og erlendra. Tengslamyndun spilaði stóran þátt í ráðstefnunni og var markmið hennar að koma forsvarsmönnum sprotafyrirtækja í samband við fjárfesta og hvora aðra.

Þar ræddu vanir leikjaframleiðendur um hvaða áhættum nýliðarnir þyrftu að passa sig á og hvað hefði reynst vel.

Framtíðarviðmót sýndarveruleika

Mörg hinna nýju fyrirtækja hér á landi vinna að þróun leikja fyrir sýndarveruleika. Meðal ræðumanna á ráðstefnunni var Chet Faliszek frá fyrirtækinu Valve sem fór yfir þróun sýndarveruleika. Hann fór yfir hvaða atriði framleiðendur ættu að forðast og margt fleira.

Faliszek fjallaði meðal annars um ákveðið vandamál sem frumkvöðlar sýndarveruleika glíma nú við. Það er að þeir vinna nú á ókönnuðu svæði og óvíst er hvert framtíðin mun leiða þá. Sem dæmi benti hann á að á nokkrum af allra fyrstu bílunum voru sett stýri eins og eru á árábátum. Það var það sem fólk þekkti best og því var rökrétt að notast við slík stýri á bílum.

Eins og frumkvöðlar bílanna uppgötvuðu þá lá framtíðin ekki í slíkum stýrum á bílum og nú er það frumkvöðla sýndarveruleika að uppgötva hvert framtíðarviðmót sýndarveruleika verði.

„Ekki vera hrædd við að gera heimskulega hluti,“ sagði Faliszek. Hann hvatti fólk til að prófa sig áfram og að hugsa út fyrir rammann.

Mikil gróska á Íslandi

Á ráðstefnunni var einnig haldinn kynningarkeppni þar sem forsvarsmenn sprotafyrirtækja kynntu vörur sínar fyrir fjárfestum sem voru í hlutverki dómara. Sænska fyrirtækið Poppermost vann keppnina, en í verðlaun fengu þeir miða og sýningarbás á Slush ráðstefnunni í Helsinki í nóvember.

Hér á landi er mikil gróska í tölvuleikjaiðnaðinum og hefur leikjaframleiðendum farið fjölgandi síðustu misseri. Um fimm hundruð störf hafa myndast í geiranum hér á landi og veltir íslenski leikjaiðnaðurinn um tólf milljörðum króna á ári.

Framtíðarsýn samtaka íslenskra leikjaframleiðenda er að gera Ísland að einu helsta leikjaframleiðslusvæði heimsins.


Tengdar fréttir

Sýndarveruleiki það sem koma skal

EVE Fanfest hátíðin hófst í dag í ellefta sinn og stendur fram yfir helgi. Í ár leggur tölvuleikjafyrirtækið CCP áherslu á nýjustu tilraunir sínar á sviði sýndarveruleika.

Vilhjálmur fjárfestir í Sólfari

Nýtt íslenskt leikjafyrirtæki, Sólfar Studios, lauk í dag hlutafjáraukningu með þátttöku breiðs hóps erlendra og innlendra fjárfesta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×