Innlent

„Ekki um neins konar pólitískan leik að ræða í þessu máli“

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar. Vísir/Daníel
„Mánuðum saman hef ég bent á að viðbrögð innanríkisráðherra við lekamálinu bæru þess ekki merki að hún áttaði sig á alvöru málsins. Atburðir dagsins sýna fram á réttmæti þeirra orða.“

Svona hefst Facebook-færsla Árna Páls Árnasonar, formanns Samfylkingarinnar sem segir að meint afskipti innanríkisráðherra af lögreglurannsókn, sem beinist að henni sjálfri og pólitískum aðstoðarmönnum sem hún ber beina ábyrgð á, feli í sér misbeitingu opinbers valds og brjóti gegn hæfisreglum stjórnsýsluréttar.

„Eins og það sé ekki nóg hefur umboðsmaður Alþingis í bréfi til ráðherra vísað í 2. mgr. 12. gr. laga um umboðsmann Alþingis, sem segir að ef umboðsmaður verði áskynja stórvægilegra mistaka eða afbrota stjórnvalds geti hann gefið Alþingi sérstaka skýrslu um málið,“ segir Árni og bætir við að hann muni ekki eftir að umboðsmaður hafi áður vísað til þessarar greinar í athugasemdum við embættisfærslur ráðherra.

„Þetta mál er nú komið handan við mörk hinnar pólitísku umræðu og mikilvægt að við treystum réttarkerfinu og opinberum eftirlitsaðilum fyrir réttum framgangi málsins,“ segir Árni.

„Stjórnmálin mega ekki trufla þann framgang, enda ekki um neins konar pólitískan leik að ræða í þessu máli. Við í stjórnarandstöðunni hljótum því að bíða niðurstöðu umboðsmanns. Í millitíðinni er mál ráðherrans í höndum þess meirihluta sem hún styðst við á Alþingi.“

Tæplega tvær vikur eru liðnar síðan Árni Páll sagði að ákæra á hendur aðstoðarmanni innanríkisráðherra, Gísla Frey Valdórssyni, fyrir að leka gögnum um hælisleitanda væri afsagnarsök fyrir ráðherra í öllum lýðræðisríkjum.

„Þetta er ekki einhver embættismaður sem nýtur sérstaka réttinda og skyldna samkvæmt lögum, heldur persónulega handvalinn aðstoðarmaður ráðherra, sem nýtur einungis aðgangs að opinberum gögnum fyrir tilverknað ráðherrans. Það er, held ég megi fullyrða, afsagnarsök fyrir ráðherra í öllum lýðræðisríkjum,“ sagði Árni Páll Árnason á Facebook


Tengdar fréttir

Stefán leitaði til ríkissaksóknara

Stefán Eiríksson, fráfarandi lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, hafði samband við ríkissaksóknara þar sem fyrirspurnir ráðherra hafi verið á þann veg að hann þurfti að afla upplýsinga um rannsóknina á lekamálinu.

Stefán segir aðstoðarmenn Hönnu Birnu hafa beðið sig um að neita frétt DV

Stefán Eiríksson, fráfarandi lögreglustjóri, tjáði Umboðsmanni Alþingis að aðstoðarmenn Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, þau Gísli Freyr Valdórsson og Þórey Vilhelmsdóttir, hafi haft samband við sig og beðið hann um að neita fréttaflutningi DV um samskipti sín við ráðherra.

Hanna Birna segist ekki hafa gert neitt rangt

"Það á aldrei að vera þannig að stjórnmálamaður velti fyrir sér að segja af sér embætti ef hann hefur ekki gert neitt rangt,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir, Innanríkisráðherra, í beinni útsendingu í þættinum Ísland í dag í kvöld. Yfirlýsing í kjölfar þriðja bréfs Umboðsmanns Alþingis til hennar hefur vakið mikla athygli í dag.

Segir Hönnu Birnu hafa spurt út í samskipti sín við umboðsmann Alþingis

Stefán Eiríksson segir að Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hafi spurt sig hvort hann hafi haft samband við umboðsmann Alþingis vegna fyrirspurna umboðsmanns til Hönnu Birnu vegna gruns um óeðlileg samskipti þeirra á milli vegna lögreglurannsóknar á lekamálinu svokallaða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×