Tónlist

„Ekki oft sem maður fær svona tækifæri svo ég stökk af stað“

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Tilfinningarnar leyna sér ekki hjá Atla.
Tilfinningarnar leyna sér ekki hjá Atla.
„Við Nanna Bryndís vorum saman í grunnskóla en það eru mörg, mörg ár síðan,“ segir Atli Freyr Demantur. Hann er í forgrunni í glænýju textamyndbandi Of Monsters And Men við lagið I Of The Storm.

Lagið kom út í dag og verður á plötunni Beneath The Skin sem væntanleg er 8. júní næstkomandi. Líkt og með lagið Crystals er myndbandið unnið af Tjarnargötunni. Þann 4. maí hefst tónleikaferð hljómsveitarinnar. Fyrst er förinni heitið til Norður-Ameríku en sveitin heldur síðan til Evrópu í júní.

„Ég var staddur í Kína að vinna að myndatöku þar þegar Nanna hringdi í mig og sagði mér að þau vildu fá mig í þetta. Það er ekki oft sem maður fær svona tækifæri svo ég stökk af stað og gerði þetta,“ segir Atli en hann býr í Kaupmannahöfn og starfar þar sem förðunarfræðingur.

Varð strax ástfanginn af laginu

Upphaflega planið var að stökkva inn í stúdíó, taka myndbandið upp og hverfa strax af landi brott en Atli ákvað að verja hér tveimur auka dögum til að hitta vini og fjölskyldu. „Ég varð strax ástfanginn af laginu og hlustaði ekki á neitt annað næstu fimm daga eftir þetta. Lagið er allt öðruvísi en Crystals. Það er kraftmikið meðan þetta er tilfinningaríkara og persónulegra. Það er kraftmikið á allt annan hátt.“

Í gegnum tíðina hefur Atli aðeins fiktað við leiklist. Sem barn talaði hann inn á teiknimyndir og átti það til að leika með Leikfélagi Keflavíkur. Að auki hefur hann leikið lítil hlutverk sem eru í bakgrunni í ýmsum sjónvarpsþáttum. „Ég enda oft í leiklistinni þó ég sé yfirleitt meira bak við myndavélina.“

„Ég er eitt stórt bros og hlakka til að sjá viðbrögðin við myndbandinu. Lagið er auðvitað frábært og þau eru algerir snillingar í hljómsveitinni. Það verður gaman að sjá þetta allt,“ segir Atli.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×