Fótbolti

„Ekki koma út úr skápnum“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Oliver Kahn.
Oliver Kahn. Nordicphotos/Getty
Oliver Kahn, fyrrverandi landsliðsmarkvörður Þýskalands í knattspyrnu, telur ekki ráðlegt fyrir samkynhneigða atvinnumenn í knattspyrnu að opinbera kynhneigð sína.

Þjóðverjinn 44 ára segir í viðtali við miðilinn Gala að samkynhneigð hafi ekki fengið grænt ljós í þýsku deildinni.

„Það hljómar kannski sorglega en ég myndi ráðleggja þeim frá því að koma út úr skápnum,“ segir Kahn. Hann segir að þó samkynhneigð sé ekki lengur stórmál í samfélaginu væri barnalegt að halda að hið sama gildi í atvinnumannaíþróttum.

Leikmenn sem kæmu úr úr skápnum þyrftu að glíma við stuðningsmenn andstæðinganna sérhvern laugardag.

„Andrúmsloftið er oft eldfimt. Það eru erjur sem geta fengið fólk til þess að gera slæma hluti. Svo þarf auðvitað að hugsa hvernig tíðindin færu ofan í styrktaraðila? Hvaða þýðingu hefur skrefið fyrir feril þinn? Staðan er flóknari en hún virðist í fyrstu.“

Innlegg Kahn kemur í kjölfarið á töluverðri umræðu í Þýskalandi um ástæður þess að enginn atvinnuknattspyrnumaður í landinu hafi opinberað samkynhneigð sína. Í júlí ráðlagði Knattspyrnusamband Þýskalands leikmönnum að stíga skrefið stóra en ekki fara hátt með ákvörðun sína. Var lagt til að bíða með það þar til í lok keppnistímabilsins.

Angele Merkel, kanslari Þýskalands, lagði einnig í púkkið í september 2012 þegar hún sagði samkynhneigðum knattspyrnumönnum að þeir hefðu ekkert að óttast.

Mario Gomez, framherji Fiorentina og þýska landsliðsins, hefur sagt að leikmenn hafi ekkert að óttast. Fyrrverandi liðsfélagi hans hjá Bayern München, Philipp Lahm, hefur hins vegar ráðlagt þeim að gera það ekki enda gætu þeir orðið fyrir barðinu á eldheitum stuðningsmönnum andstæðinganna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×