Innlent

„Eins og nýju strákarnir þori ekki í keppnina“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Viktor Örn Andrésson fagnar sigri í keppninni í fyrra.
Viktor Örn Andrésson fagnar sigri í keppninni í fyrra. Vísir/Valli
„Það er bara eins og þessir nýju strákar þori ekki í keppnina,“ segir Viktor Örn Andrésson, Matreiðslumaður ársins 2013 og Norðurlandameistari 2014. Keppninni Matreiðslumaður ársins árið 2014 var frestað á dögunum vegna ónægrar þátttöku. Aðeins fjórir skráðu sig til leiks.

Viktor Örn keppti í þriðja sinn í ár og segir að það sé allur gangur á því hve margir skrái sig til leiks. Það hafi rokkað á milli tíu og tuttugu. Aldrei hafi þó jafnfáir skráð sig og nú.

„Ef það eru fjórir þá er ekki einu sinni hægt að hafa forkeppni,“ segir Viktor Örn. Reglurnar í keppninni undanfarin ár hafa verið á þann veg að fimm keppendur komast í úrslit.

Viktor Örn er í íslenska kokkalandsliðinu sem stendur í undirbúningi fyrir HM í Lúxemborg í nóvember. Hann ætlaði sér ekki að taka þátt sjálfur því að æfingar landsliðsins skarast á við keppnina. Aðspurður hvort ekki væri frábær undirbúningur fyrir HM að keppa í Matreiðsumanni ársins líkt og knattspyrnulandsliðin spila æfingaleik auk keppnisleika segir Viktor Örn:

„Þetta er eins og félagsliðin myndu setja leik á sama tíma og það væru landsliðsæfingar í gangi.“

Jakob H. Magnússon.Vísir/STefán
Metnaðar- og áhugaleysi

Jakob H. Magnússon, matreiðslumeistari og dómari, segist hafa heyrt alls kyns afsakanir fyrir því hve keppendur eru fáir. Tímasetningin sé slæm, erfitt að nálgast hráefnið og önnur verkefni standi í veginum. Hann gefur þó lítið fyrir þær.

„Ég held að það sé aðallega metnaðar-, áhuga- og hvatningarleysi um að kenna. Ef kokkar ætla sér að keppa gera þeir það þrátt fyrir allar úrtölur og neikvæðni.“

Jakob segir í pistli á Veitingageiranum að það að keppa í matreiðslukeppni sé frábær og einstök reynsla sem endist út starfsævina hvernig sem fari í keppninni. Af því tilefni rifjaði Jakob upp sögu af áhugasömum kokki sem starfaði á sveitahóteli. Mætti hann með fatið sitt sem þótti frekar gamaldags og lummó.

„Hinir þátttakendurnir í hroka sínum pískruðu sín á milli og gerðu góðlátlegt grín að  matnum hans,“ rifjar Jakob upp. Eins og í bestu ævintýrum var umræddur kokkur valinn í liðið sem vann síðar til gullverðlauna í alþjóðakeppni í Þýskalandi.

Hafliði Halldórsson.Vísir/Vilhelm
Maður er með fullt hús

Viktor Örn segir æfingar fyrir HM í nóvember ganga rosalega vel. Næsta æfing sé á mánudaginn þar sem heitir réttir verða framreiddir. Þá keppir landsliðið einnig í flokki kaldra rétta. Hann á ekkert endilega von á því að taka aftur þátt í keppninni um Matreiðslumann ársins.

„Maður er náttúrulega með fullt hús. Maður veit ekki hvort maður eigi að fara í aðrar keppnir,“ segir Viktor Örn hlæjandi en hann varð sem fyrr segir Norðurlandameistari í mars. Auk hans hefur Ragnar Ómarsson orðið Norðurlandameistari en það var árið 2003.

Vantar nýjan vettvang

Hafliði Halldórsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara sem verið hefur dómari í keppninni undanfarin ár, segir í samtali við RÚV að tímasetningunni sé líklegast um að kenna. Haustið hafi hentað vel en með auknum ferðamannastraumi sé mikið að gera hjá kokkum.

Keppnin hefur undanfarin ár verið haldin í húsakynnum Menntaskólans í Kópavogi. Þar geta áhorfendur hins vegar ekki fylgst með kokkunum við störf heldur aðeins virt tilbúna rétti fyrir sér. Því vanti betri vettvang fyrir keppnirnar.


Tengdar fréttir

Viktor Örn matreiðslumaður ársins

Viktor Örn Andrésson, yfirmatreiðslumaður hjá Bláa lóninu, er matreiðslumaður ársins 2013 en úrslitakeppnin fór fram í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×