Fótbolti

Einkunnagjöf íslenska landsliðsins: Kári besti maður vallarins

Leikmenn íslenska landsliðsins.
Leikmenn íslenska landsliðsins. Vísir/Valli


Kári Árnason var besti leikmaður íslenska landsliðsins í fræknum 1-0 sigri á Hollandi í kvöld að mati Vísis og Fréttablaðsins. Skammt undan kom félagi hans úr hjarta varnarinnar, Ragnar Sigurðsson, en þeir tveir stóðu vaktina eins og hershöfðingjar í leiknum.

Allt íslenska liðið átti frábæran leik en að mati okkar voru það Kári, Ragnar, Hannes og Aron sem stóðu upp úr í íslenska liðinu í kvöld.

Nánari útlistun á hverri einkunn má sjá hér fyrir neðan.

Byrjunarlið:



Hannes Þór Halldórsson, markvörður   9

Smá tæpur í fyrri hálfleik en reddaði sér sem skipti öllu og varði mörgum sinnum mjög vel í seinni.

Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður  8

Traustur og gerði engin mistök. Yfirvegaður og öruggur.

Kári Árnason, miðvörður 9, maður leiksins

Tók mikla ábyrgð í vörninni og í því að spila boltanum skynsamlega út úr vörninni. Tapaði ekki einvígi og skallaði allt í burtu.

Ragnar Sigurðsson, miðvörður 9

Yfirvegaður að vanda og lenti aldrei í miklum vandræðum hvort sem er í loftinu eða einn á móti einum. Átti öll sín svæði og gerði engin mistök.

Ari Freyr Skúlason, vinstri bakvörður 8

Lifði af fyrstu 25 mínúturnar á móti Robben og skilaði sínu í vörn sem sókn. Þurfti að dekka stór svæði í seinni en slapp með það.

Birkir Bjarnason, hægri kantmaður 8

Vann vel að vanda og vann sig inn í leikinn eftir rólega byrjun. Sýndi hvað eftir annað klókindi sín ekki síst þegar hann fiskaði vítið.

Aron Einar Gunnarsson, miðjumaður 9

Átti miðjuna. Hélt stöðu frábærlega og las vel þegar aðrir leikmenn hlupu út úr stöðu. Rak sína menn áfram og hélt vinnslunni gangandi.

Gylfi Þór Sigurðsson, miðjumaður 8

Vann frábæra varnarvinnu og hjálpaði við frábæra pressu inn á miðjunni. Hefur oft verið meira ógnandi í sókninni en frábært skot hans var nálægt því að fara inn. Kláraði vítið vel.

Jóhann Berg Guðmundsson, vinstri kantmaður  8

Var allt í öllu í sóknarleiknum og pressunni. Mjög ógnandi. Frábær á boltanum en óheppinn með skotin sín.

Jón Daði Böðvarsson, framherji 7

Hljóp og hljóp eins og hann er vanur. Kom kannski lítið út úr þegar hann var með boltann en hann tók góðar ákvarðanir

Kolbeinn Sigþórsson, framherji 7

Hélt allri varnarlínu Hollendinga við efnið frá fyrstu mínútu og var mjög sýnilegur þegar menn þurfti að losa pressu. Fiskaði mann af velli og breytti með því leiknum.



Varamenn:



Eiður Smári Guðjohnsen 6 (Kom inn á fyrir Kolbein Sigþórsson á 64. mínútu)

Svolítið þungur og ætlaði sér aðeins of mikið í byrjun. Fann síðan taktinn og spilaði af skynsemi

Alfreð Finnbogason -(Kom inn á fyrir Jón Daða Böðvarsson á 78. mínútu)

Fékk nokkur tækifæri einn á einn en tókst ekki að nýta sér þau

Ólafur Ingi Skúlason -(Kom inn á fyrir Aron Einar Gunnarsson á 86. mínútu)

Lét finna fyrir sér á lokamínútum og komst vel frá sínum fáu mínútum.


Tengdar fréttir

Jafntefli gegn Kasakstan tryggir sæti á lokakeppni EM

Íslenska landsliðið þarf þrjú stig úr síðustu þremur leikjum sínum í undankeppni EM til þess að gulltryggja sætið á lokakeppni mótsins sem fer fram í Frakklandi næsta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×