Lífið

„Eiginmaður minn er ekki hommi“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Sjónvarpsstöðin TLC setur sérstakan heimildarþátt í loftið þann 11. janúar næstkomandi.

Þátturinn heitir My Husband's Not Gay, eða Eiginmaður minn er ekki samkynhneigður. Í honum er fylgst með Mormónum í Bandaríkjunum, hjónum þar sem karlmaðurinn segist laðast að karlmönnum en er samt ekki samkynhneigður að eigin sögn.

Þátturinn hefur vakið talsverða athygli og finnst mörgum hann frekar skrýtinn ef marka má athugasemdir við stikluna á YouTube en stikluna má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×