Innlent

„Ég hef ekki ennþá mætt Guðna til að ræða framtíðarsýn“

Birgir Olgeirsson skrifar
Andri Snær Magnason er á því að kosningabaráttan hafi aldrei hafist. Þetta sagði hann í kosningavakt Stöðvar 2 þar sem hann og Davíð Oddsson ræddu málin nú þegar kosningabaráttunni er nánast lokið. Andri Snær sagði að þessar níu manna raðir sem hefðu stundum verið settar upp af fjölmiðlum, þar sem allir frambjóðendur mættust í einu, hefðu ekki verið að gera sig að sum leyti og aldrei hefði átt sér stað raunverulegt samtal innan hóps frambjóðenda um eðli embættisins.

„Ég hef ekki ennþá mætt Guðna (Th. Jóhannessyni) til að ræða framtíðarsýn. Hver ágreiningsmunur okkar er um embættið,“ sagði Andri Snær og nefndi sem dæmi að Guðni vill standa fyrir utan umræðuna sem forseti en Andri telur ekki neikvætt að hafa tekið þátt í samfélags umræðu.

Andri Snær sagði til að mynda hafa lagt fram skýra sýn um loftlagsmál sem Guðni á að sögn Andra að hafa vísað af borðinu því það ætti ekki heima undir embætti forseta.

Erfitt að skamma sjónvarpsstöðvar

Davíð sagði erfitt fyrir frambjóðendur að skamma sjónvarpsstöðvarnar því það væri eflaust fyrir þær að koma níu frambjóðendum fyrir. Hann sagði að hann hefði viljað sjá meira samráð með stöðvunum, til að mynda var dregið um raðir en enginn fulltrúi framboða viðstaddur þá.

Andri Snær sagði að verið sé að velja forseta til næstu fjögurra ára en lítið sé vitað um hann, hvaða mál mun forsetinn tala fyrir erlendis, hvar eru hans styrkleikar varðandi tengslanet út í heim og hvaða þræði vill hann draga heim. Þetta var vitað þegar Vigdís Finnbogadóttir var kjörin og Ólafur Ragnar Grímsson að sögn Andra Snæs.

Þriðjungur hvers viðtals fór í skoðanakönnun

Talið barst að skoðanakönnunum og sagðist Andri snær velta þeim fyrir sér út frá Höllu Tómasdóttur. Hún væri frambærilegur frambjóðandi en mælst undir 2,5 prósentum til að byrja með og þá ekki búin að mæta í sjónvarpið. Á þeim tíma hefðu fjölmiðlar strax verið farnir að spyrja hvort viðkomandi frambjóðandi sem mælist með lítið fylgi ætli ekki að draga framboð sitt til baka. Hver einasta umræða að sögn Andra Snæs hófst á skoðanakönnunum og þriðjungur hvers viðtals fór í viðbragð við þeim.

Davíð sagðist vera hlynntur því að menn gætu keypt skoðanakannanir en var sammála því að umræðan snerist full mikið um þær. Davíð nefndi könnun félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands sem birtist nokkrum dögum fyrir kosningar. Þar voru 55 prósent óákveðnir og fannst Davíð það að hluta óábyrgt að draga svo mikla ályktun út frá þeirri niðurstöðu sem blasti við.

Andri Snær sagði að fylgið hefði hreyfst mest þegar menn mættu í sjónvarp. Þó hann hefði átt góð innslög í útvarpi og með góða grein í dagblaði þá náði það ekki að gera jafn mikið og að mæta í sjónvarp.

Erfitt að meta vægi samfélagsmiðla

Þeir sögðu erfitt að meta hvert vægi samfélagsmiðla væri í þessari kosningu, hvort þeir væru að ná til þess fólks sem væri ekki að fylgjast með þeim þar. Andri nefndi að á Facebook-inu sínu væri hann með allt að 96 prósenta kosningu og sagði þetta til marks um nýjan veruleika þar sem fólk býr í sinni kúlu og styrkist þar í sinni sjálfsmynd.

Erfitt að kjósa um sumar

Davíð nefndi að þegar hann var á þingi og kannski búið að takast harkalega á um lok þings þá hitti hann fólk á Austurvelli loksins þegar hann losnaði út og þá var spurt: Hvað, ertu ekki löngu kominn í sumarfrí. Þá hafi hann komist að því að fólk er með hugann við allt annað en pólitík á miðju sumri og erfitt sé að ná til fólks á þessum árstíma þegar það er að plana sumarbústaðaferðir og reyna að njóta þessa stutta sumars sem Íslendingar hafa.

„Í júlí slokknar á okkur sem pólitískum verum,“ sagði Andri Snær og sagði að meira segja í mestu umhverfisbaráttunni byrjuðu menn að grilla í júlí.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×