Lífið

"Ég er mjög spenntur yfir því að verða pabbi“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Verðandi foreldrar.
Verðandi foreldrar. vísir/getty
Leikarinn Stanley Tucci á von á barni með sinni heittelskuðu, Felicity Blunt, systur leikkonunnar Emily Blunt.

Stanley staðfesti þetta við tímaritið Us Weekly á viðburði í New York í gær.

„Ég er mjög spenntur yfir því að verða pabbi. Þetta er ótrúlegt. Ég er spenntastur yfir því að eignast barn með Felicity og að barnið verði heilbrigt,“ sagði Stanley.

„Mér er alveg sama um kynið,“ bætti hann við og hló. 

Þetta verður fyrsta barn Stanley og Felicity saman en leikarinn á þrjú börn með fyrrverandi eiginkonu sinni, Kate, sem lést úr brjóstakrabbameini árið 2009.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×