Innlent

"Ég er með sjúkdóm sem heitir geðhvarfasýki" - Högni í opinskáu viðtali

Högni Egilsson
Högni Egilsson Mynd/Stefán Karlsson
„Ég er með sjúkdóm sem heitir geðhvarfasýki," segir Högni Egilsson, tónlistarmaður og söngvari hljómsveitarinnar Hjaltalín. „Þetta er sjúkdómur sem ég greindist með í byrjun sumars og hef verið að kljást við í gegnum sumarið."

Högni greinir frá sjúkdómi sínum, erfiðum bata og tónlistarsköpun sinni, í opinskáu viðtali í Fréttatímanum. Hann lýsir veikindum sínum á þessa leið:

„Ég fer í maníur, örlyndi og það tekur mig á flug á staði þar sem ég er ekki í sambandi við umhverfið. Heldur er sem ég sé dreginn inn í heim hugsana og fótunum kippt undan mér. Ég svíf svo um í draumaheimi. Þegar ég er á þessum stað finnst mér eins og allir séu geðveikir nema ég því enginn skilur."

Hann segir viðbrögð fólks við veikindunum hafa komið sér á óvart.

„Það er svo magnað hvernig það er auðveldara að afskrifa hegðun mína á eitthvað utanaðkomandi, eins og eiturlyf eða áfengi," segir Högni. Mikið hefur verið rætt um hegðun hans á síðustu misserum en líf hans tók stakkaskiptum þegar sjúkdómseinkennin fóru að gera vart við sig síðasta sumar.

Um tíma var hann vistaður á geðdeild. Nú reynir hann að nýta þessa reynslu og beina henni í gegnum tónlistarsköpun sína. Nýjasta plata Hjaltalín, Enter 4, ber vitni um það en hljómplatan er liður í bataferli Högna. Þannig er Enter 4 hluti af uppgjöri hans og hljómsveitarinnar við sig. Þá segist Högni hafa skapað fallegustu tónlist ferils síns í veikindunum.

„Það er eins og ákveðin feimni einkenni allt sem viðkemur andlegri líðan," segir Högni. „Einmitt þess vegna hef ég ákveðið að stíga út úr skápnum með þetta. Mig langar einfaldlega að opna augu fólks fyrir geðsjúkdómum og hve algengir þeir eru. Svo gjörið svo vel, ég heiti Högni Egilsson og ég er með geðhvarfasýki. Ég er andlega veikur."

„Það er einlæg von um mín að samfélagið opni sig meira fyrir þeim sem eru frábrugðnir," segir Högni að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×