Glamour

"Ég er í Vivianne Westwood og með túrtappa frá OB.“

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Samfélagsmiðlar loguðu í nótt yfir Emmy hátíðinni og vakti þar einna helst athygli framganga E! kynnisins Guiliana Rancic sem þótti spyrja heldur innihaldalausra spurninga til kvenna á rauða dreglinum. Leikkonan Amy Schumer svaraði hinsvegar skemmtilega fyrir sig þegar Rancic spurði hana í hverju hún var í nótt: „Ég er í Vivianne Westwood og með túrtappa frá OB.“ Einlægara svar er vandfundið og samfélagsmiðlar elskuðu Schumer fyrir vikið.

Svarið er í takt við #askhermore hreyfingu sem fór af stað fyrir Óskarinn í fyrra fyrir tilstuðlan Reese Witherspoon. Rancic hefur greinilega ekki fengið memóið en þar var fjölmiðlafólk hvatt til að spyrja konur að meiru en bara í hverju þær væru. Það er gömul saga og ný að fjölmiðlafólkið sem fjallar um rauða dregilinn spyr konur og karla ekki að sömu spurningunum, á meðan karlarnir fá spurningar sem snúast um vinnu þeirra fá konurnar vanalega bara spurningar sem snúast um útlit. 

Samfélagsmiðlar eru gott aðhald þegar kemur að þessu og við elskum Amy Schumer við að segja hlutina alltaf eins og þeir eru. 










×