Innlent

„Ég er 100% viss um að Nígería sigri Ísland“

Kolbeinn Tumi Daðason í Volgograd skrifar
Pascal Atuma segist 100 prósent viss um íslenskan sigur. Aðspurður hvort hann hafi alltaf rétt fyrir sér segir hann: "Allavega núna.“
Pascal Atuma segist 100 prósent viss um íslenskan sigur. Aðspurður hvort hann hafi alltaf rétt fyrir sér segir hann: "Allavega núna.“ Vísir/Vilhelm
Leikarinn, handritshöfundurinn, framleiðandinn og leikstjórinn Pascal Atuma frá Nígeríu er sannfærður um að Nígería muni sigra Ísland í leik liðanna í D-riðli HM í Rússlandi á föstudaginn. 

„Ég er 100% viss um að Nígería sigri Ísland,“ sagði Pascal þegar blaðamaður hitti á hann á stuðningsmannasvæðinu í Volgograd í kvöld. Sömu sögu var að segja af öðrum nígerískum stuðningsmönnum. Þeir eru kokhraustir fyrir leikinn.

Pascal býr í Kanada en er grjótharður stuðningsmaður þeirra grænklæddu, The Super Eagles, eins og nígeríska liðið er kallað. Ofurernirnir myndi það líklega heita á okkar ylhýra.

„Ég er mikill aðdáandi og fylgdi liðinu líka til Brasilíu fyrir fjórum árum,“ segir Pascal. Þá kom upp ósætti hjá Nígeríumönnum vegna peningagreiðslna frá knattpsyrnusambandinu og gekk illa hjá liðinu.

 

Spánverjar á stuðningsmannasvæðinu í Volgograd gátu fagnað 1-0 sigri á Íran í kvöld.Vísir/Vilhelm
En hann er bjartsýnn á gengi liðsins í Rússlandi.

„Við erum ekki sömu mistökin og á móti Króatíu,“ segir Pascal. 

Simeon Tochukwu Nwankwo, framherji Crotone í ítölsku b-deildinni, og Kelechi Iheanacho, framherji Leicester, þurfi að byrja gegn Íslandi. Vantað hafi upp á sóknarleikinn gegn Króatíu.

„Ég horfði á leikinn hjá Íslandi og liðið er mjög vel skipulagt í varnarleiknum. Nígería þarf að brjóta þá niður,“ segir Pascal. Til þess þarf að planta fyrrnefndum framherjum í byrjunarliðið.

Stuðningsmannasvæðið í Volgograd er þægilegt. Stór skjár við endan á löngum tröpppum þar sem nóg var af sætum í kvöld.Vísir/Vilhelm
Úrslitin verða 2-1 í jöfnum leik en Pascal telur miklu máli skipta að allt sé undir hjá Nígeríu. 

„Nígera er með bakið upp við vegg. Sigur eða farðu heim,“ segir Pascal.

Detti Nígería út og Ísland kemst áfram er hann ekki líklegur til að hoppa á Íslandsvagninn.

„Þá hoppa ég á Ronaldo vagninn,“ segir Pascal og lýsir þeim portúgalska, gæðum hans og einbeitingu, í þaula.

„Ef Ronaldo væri franskur, spænskur eða þýskur þá yrði sú þjóð heimsmeistari.“

Vísir er með öflugt teymi í Rússlandi sem verður með ítarlegan fréttaflutning af íslenska liðinu á HM. Fylgist með á samfélagsmiðlum okkar - á FacebookTwitter og Instagram.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×