Lífið

„Ég bjóst engan veginn við svona viðbrögðum“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Gyða Thorlacius Guðjónsdóttir
Gyða Thorlacius Guðjónsdóttir
Gyða Thorlacius Guðjónsdóttir er þriggja barna móðir sem þarf á nýju nýra að halda. Hún hefur verið veik í yfir fimmtán ár, fjölskylda hennar getur ekki hjálpað henni og biðlaði hún til þjóðarinnar í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 á mánudagskvöld.

Í samtali við Vísi segist Gyða hafa fengið mikil og jákvæð viðbrögð.

„Ég bjóst engan veginn við svona viðbrögðum,“ segir Gyða. Hún segir tugi einstaklinga hafa haft samband við sig vegna hugsanlegrar líffæragjafar. Ferlið tekur hins vegar langan tíma svo ekkert er enn komið í ljós með hvort og þá hver geti gefið Gyðu líffæri.

„Ég er sérstaklega ánægð með að svo virðist sem viðtalið hafi aukið umræðu um líffæragjafir. Það finnst mér mjög jákvætt og eins ef fleiri koma til með að skrá sig sem líffæragjafar.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×