Innlent

„Ég ætla ekki að vera gaurinn sem nefbraut Ben Stiller“

Hugrún Halldórsdóttir skrifar
Ólafur Darri Ólafsson, sem leikur flugmann á móti Ben Stiller í The Secret Life of Walter Milly, var á meðal þeirra fjölmörgu gesta sem mættu á sérstaka hátíðarsýningu á myndinni í Smárabíó í gær.

Ísland í dag hitti kappann sem sagði meðal annars frá tökum á atriði þar sem Stiller bað Ólaf um að ráðast á sig. Ólafi leist þá ekki á blikuna enda eilítill stærðarmunur á leikurunum eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi.

Auk Ólafs fara þrír íslenskir leikarar með hlutverk í myndinni, þeir Gunnar Helgason, Ari Matthíasson og Þórhallur Sigurðsson en brandari eins þeirra rataði alla leið á hvíta tjaldið.

Rætt verður við leikarana, hljómsveitarmeðlimi of Monsters and Men sem eiga lag í myndinni og fleiri í Íslandi í dag að loknum fréttum í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×