Lífið

"Ef þú ferð ekki dansleikinn með Stefan ættirðu að láta lítið fyrir þér fara“

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Bandaríski unglingspilturinn Stefan Montana fékk sjálfan Walter White til þess að fá stúlku að nafni Maddy með sér á lokasandsleik í skólanum.

Stefan hitti leikarann Bryan Cranston sem lék Walter White í þáttunum Breaking Bad á föstudaginn í síðustu viku. 

Cranston brá sér í hlutverk Walter White og virtist hafa gaman af uppátækinu.

Skilaboð White til Maddy voru: „Ef þú ferð ekki dansleikinn með Stefan þá ættirðu að „tread lightly“, eða á íslensku láta lítið fyrir þér fara.“

Hótun frá Walter White dugði til. Maddy sagði já eins og Stefan birti á Twitter síðu sinni stuttu síðar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×