Innlent

„Þú ert leiðinleg, ljót og þykist vera manneskja sem er lögð í einelti“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Helga Guðný segir sögu sína.
Helga Guðný segir sögu sína.
„Þegar ég byrjaði í áttunda bekk fékk ég nýjan umsjónakennara, og var hann þessi umtalaði kennari sem er nú úti um allt í fjölmiðlum. Hann kom hörmulega fram við mig. Hann tók þátt í eineltinu, gerði lítið úr mér, braut trúnaðarbrest, útilokaði mig og kom ömurlega fram við mig við tilgangslausustu aðstæður.“

Svona lýsir Helga Guðný Þorgeirsdóttir, nemandi í 10. bekk í Grunnskóla Grindavíkur, einelti sem hún hefur orðið fyrir á skólagöngu sinni. Helga Guðný hefur fengið nóg og ritaði af því tilefni opinn pistil og birti á Fésbókarsíðu sinni í kvöld.

Helga lýsir grófu einelti ef hendi samnemenda sinna sem og kennara. Vísir hefur að undanförnu greint frá því að kennari í Grunnskóla Grindavíkur sé enn við störf í skólanum þrátt fyrir staðfest tilfelli um einelti af hans hálfu í garð nema.

„Eruð þið ánægð núna? Það er ekki auðvelt að gera mig brjálaða en ykkur tókst að hrekja mig burt úr skólanum,“ segir Helga í pistli sínum. Eggjum var kastað í hús fjölskyldu hennar í vikunni og hefur hún í kjölfarið ekki mætt í skólann.

,,Dreptu þig bara," eru á meðal skilaboða sem Helga segist hafa þurft að sæta og ummælin eru fleiri:

„Þú ert bara leiðinleg, ljót og þykist vera manneskja sem er lögð í einelti sem þú hefur aldrei verið og fólk hatar þig svo mikið“

„Svo sakarðu fullorðið fólk um lygi !!! Mella!"

„Hverjum er ekki drullu sama hvort þú skerir þig, ert fokking kjánaleg, finnst þér skrítið að fólk gerir gys af þér ahah! Ert bara ógeð,“

Vísir hefur fengið góðfúslegt leyfi frá Helgu og móður hennar til að birta umræddan pistil en hann má lesa í heild sinni hér að neðan:

Pistill Helgu

Hæhæ, Helga heiti ég og þið nennið eflaust ekkert að lesa þetta en þið sem nennið að gefa ykkur tíma, ég hef pælt í því að skrifa þetta síðan í gærkvöldi en það var yndisleg manneskja sem gaf mér kjarkinn til að skrifa þetta, takk fyrir það.

En í gær varð dropinn sem fyllti mælirinn algjörlega. Það var grýtt eggi í glugga hjá okkur. Ég hef orðið fyrir einelti síðan ég byrjaði í grunnskóla og hefur það verið misslæmt en aldrei verið jafn slæmt og síðustu ca 2 og hálfa árið og bara versnað og versnað.

Á þessu skólaári hefur dótinu mínu verið stolið margoft, ég verð fyrir því nokkrum sinnum í viku stundum að það er búið að bleyta skónna mína og fyrir ca 2-3 vikum síðan kom ég inn í stofu og var þá búið að hvolfa borðinu hjá mér, henda öllu úr töskunni og dreifa því um gólfið. Þegar ég kom inn í tíma var ég SVO niðurlægð. Ég var ný búin að skipta um bekk og þetta skeði. Frekar mikið social suicide ef ég á að vera hreinskilin.

Þegar ég byrjaði í áttunda bekk fékk ég nýjan umsjónakennara, og var hann þessi umtalaði kennari sem er nú útum allt í fjölmiðlum. Hann kom hörmulega fram við mig. Hann tók þátt í eineltinu, gerði lítið úr mér, braut trúnaðarbrest, útilokaði mig og kom ömurlega fram við mig við tilgangslausustu aðstæður.

Af öllu sem hefur komið fyrir mig innan veggja skólans fannst mér útilokunin alltaf verst af öllu. Það eina sem ég bað um var einn séns, að fólk gæfi sér tækifæri til að kynnast mér. Ég var ekki að biðja um vini. Ég var að biðja um tækifæri til að sýna það að ég væri venjuleg manneskja eins og þið. Manneskja sem væri líka á staðnum, ekki ósýnilegt blóm uppá vegg.

Eruð þið ánægð núna, það er ekki auðvelt að gera mig brjálaða en ykkur tókst að hrekja mig burt úr skólanum. Eruð þið ánægð núna? Þó þið séuð það kannski núna hugsa ég að þið eigið eftir að sjá virkilega eftir þessu eftir eitthver ár þegar ég er byrjuð að fylgja mínum helstu draumum. Þá sjáið þið kannski að ég er bara venjuleg manneskja eins og þið öll.

,,Dreptu þig bara" ,,Þú ert bara leiðinleg,ljót og þykist ver manneskja sem ert löggð í einelti sem þú hefur aldrei verið! og fólk hatar þig svo mikið svo sakarðu fullorðið fólk um lygi!!! Mella!" ,,Hverjum er ekki drullu sama hvort þú skerir þig, ert fokkin kjánaleg finnst þér skrítið að fólk gerir gys af þér ahah! Ert bara ógeð"

Finnst ykkur þetta vera fallegt? Held að fáum finnist það. Hvað fáið þið útúr þessu? Einelti er greinilega óstöðvandi en réttlætið sigrar að lokum! En alla veganna ég veit ekki af hverju en ég hef alltaf verið sár yfir þessu en í gærkvöldi sprakk ég gjörsamlega. Ykkur á eftir að þykja það virkilega sorglegt eftir eitthver ár að hafa rústað árunum fyrir mér sem eiga að vera ,,bestu ár lífs míns".

Ykkur á eftir að þykja leiðinlegt þegar þið eruð orðin fullorðin og komin með börn, á þeim tíma sem þið eigið að vera fyrirmynd fyrir börnin ykkar að þurfa að pæla í því að hafa hrakið mig burt úr skólanum.

Mig hefur langað að opna mig um þetta síðan í gær en ekki þorað því útaf ykkar viðbrögðum en vitið þið hvað? Ég er ekki hrædd við ykkur og verð það aldrei, Skömmin er ykkar, ekki mín!


Tengdar fréttir

Einelti kennara í Grindavík: Nemendur hættir að mæta í skólann

Tvær formlegar kvartanir hafa borist skólayfirvöldum vegna kennarans og hafa þær verið til rannsóknar hjá sálfræðingum. Fimmtán nemendur hafa skrifað undir harðorða yfirlýsingu til bæjaryfirvalda þar sem minnst sé á einelti, ofbeldi og þöggun frá fyrri tíð.

„Mér finnst þetta bara ótrúlega sorglegt mál"

Eggjum var kastað í tvö hús í Grindavík í nótt, að því er virðist í tengslum við umdeilt mál í bænum, þar sem grunnskólakennari er sakaður um að leggja börn í einelti. Móðir eins barnanna kveðst vilja að þau geti farið óhrædd í skólann.

Hagur barns er hagur samfélagsins

Nemendur í Grunnskóla Grindavíkur sem rufu þögnina og sögðu frá einelti kennara þurfa nú að sæta ofsóknum frá bæjarbúum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×