Innlent

„Brýnt að bregðast við grimmdarverkum ISIS“

Atli Ísleifsson skrifar
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra er í Brussel.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra er í Brussel. Vísir/Vilhelm
„Við styðjum aðgerðir gegn ISIS enda brýnt að bregðast grimmdarverkum samtakanna,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.

Gunnar Bragi sótti í dag utanríkisráðherrafund sextíu ríkja í Brussel sem taka þátt alþjóðlegum aðgerðum gegn hryðjuverkasamtökunum ISIS í Írak og Sýrlandi. Öll aðildarríki Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins sóttu fundinn ásamt fjölmörgum Arabaríkjum og Asíuríkjum.

„Ísland leggur sín lóð á vogaskálarnar með því að styðja neyðar- og mannaúðaraðstoð fyrir óbreytta borgara í gegnum stofnanir Sameinuðu þjóðanna,“ segir Gunnar Bragi.

Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að á fundinum hafi verið rætt um aðgerðir gegn ISIS m.a. hernaðarlegan stuðning við írösk stjórnvöld; aðgerðir til að sporna við fjármögnun samtakana, viðbrögð við áróðursstarfsemi ISIS, eftirlit með farandvígamönnum og mannúðaraðstoð fyrir almenna borgara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×