Lífið

„Blikkarinn“ besta augnablikið í fyrsta þætti Ísland Got Talent

Atli Ísleifsson skrifar
Áhorfendur hafa valið besta augnablikiðúr fyrsta þætti Ísland Got Talent sem sýndur var síðasta sunnudagskvöld. Kosið var í símakosningu og var „Blikkarinn“ svokallaði hlutskarpastur.

Héðinn Valdimarsson leigubílstjóri blikkaði þá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur dómara á eftirminnilegan hátt eftir að hafa lokið flottu atriði sem komst áfram.

Næsti þáttur af Ísland Got Talent verður annað kvöld og mun þá ný símkosning hefjast. Þátttakendur geta unnið kúpt 55“ LG snjallsjónvarp að andvirði 600.000 krónur frá Sjónvarpsmiðstöðinni og 250 þúsund króna gjafakort frá Íslandsbanka. Dregið verður úr innsendum atkvæðum 6. mars næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×