Viðskipti innlent

„Black Friday“ kominn til Íslands: „Það er allt vitlaust“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Auglýstu svarta föstudag í dag.
Auglýstu svarta föstudag í dag. vísir
„Við byrjuðum reyndar á þessu í fyrra ,“segir Egill Reynisson, annar eigandi Húsgangahallarinnar og Betra Baks, í samtali við Fréttastofu. Húsgagnahöllin, ásamt fjölda fyrirtækja, auglýsir í Fréttablaðinu í dag svokallaðan „Black Friday“.

Svarti föstudagur er mesti verslunardagur ársins í Bandaríkjunum en verslanir bjóða þá upp á mikinn afslátt á föstudeginum eftir þakkagjörðarhátíðina.

Margar verslanir opna þá mjög snemma dags og hafa opið langt fram á kvöld. Nú virðist eins og enn ein hefðin sé komin til Íslands.

Mikill troðningur varð þegar verslanir opnuðu á miðnætti Vestanhafs en röð hafði myndast fyrir utan Húsgagnahöllina í morgun.

„Þetta er bara eins og svo margt annað gott og skemmtilegt sem kemur frá Ameríku og maður veit að Íslendingar eru að sækja í þennan dag erlendis. Þetta er bara okkar svar við því, að fá Íslendinga til að versla innanlands.“

Húsgagnahöllin upp á Höfða.vísir
Egill segir að uppátækið hafi heppnast gríðarlega vel fyrir ári síðan. 

„Þetta er einkennilegur tímapunktur. Það eru mánaðarlok en samt nýtir fólk þennan dag til að byrja jólainnkaupin.“

Hann segir að það sé nú þegar allt orðið vitlaust upp í Húsgagnahöll. 

„Það var löng röð þegar við opnuðum og það er allt vitlaust. Við lokuðum einnig klukkan 22 í fyrra en síðasti kúnninn var að fara út um klukkan tólf.“

Fleiri fyrirtæki auglýstu „Black Friday“ í blaðinu í dag en þar má meðal annars nefna Rúmfatalagerinn, The Pier, Skór.is, Debenhams og Betra Bak.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×