Bílar

Bílabúð Benna frumsýnir sportjeppann Macan

Finnur Thorlacius skrifar
Porsche Macan.
Porsche Macan. Porsche
Haft hefur verið á orði að sportið sé í genunum hjá Porsche enda er framleiðandinn þekktur fyrir marga af óviðjafnanlegustu sportbílum heimsins. Árið 2002 markaði Porsche sér einnig afgerandi sérstöðu í flokki lúxusjeppa með kynningu á Cayenne.

Nú, tólf árum síðar, hefur þessum meistara sportbílanna tekist að sameina bestu eiginleika Porsche í nýjum bíl, sportjeppanum Macan.

Bílablaðamenn hafa lofað bílinn í hástert og eru á einu máli um að Macan sverji sig rækilega í ættina. Viðtökur á markaðnum hafa og farið fram úr björtustu væntingum framleiðenda. Sem stendur er hann uppseldur víða og er t.d. 8 mánaða bið eftir honum í framleiðslulandinu Þýskalandi.

Nú er sportjeppinn Macan kominn til Íslands og Bílabúð Benna frumsýnir hann  á sumardaginn fyrsta 24. apríl, milli kl. 11:00 og 16:00.  Macan verður einnig í öndvegi í Porsche salnum næstu dagana, ef það hentar fólki betur.

Innanrými bílsins er glæsilegt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×