Skoðun

„Barnið mitt er ódýrara en barnið þitt"

Þórdís Valsdóttir skrifar
„Barnið mitt er ódýrara en barnið þitt," sagði móðir stúlku sem fæddist þann 14. október við móður drengsins sem fæddist rétt eftir miðnætti þann 15. október. Nánar tiltekið allt að 1,2 milljónum króna ódýrara - að mati ríkisstjórnarinnar.

Hámarksgreiðslur í fæðingarorlofi voru hækkaðar umtalsvert í síðustu viku og miðast gildistaka reglugerðarinnar við börn sem fæðast, verða ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur, 15. október.

Ég fagna þessari breytingu en er skilin eftir með þá hugsun að barnið mitt, sem er tæplega tveggja mánaða, sé annars flokks.

Fyrir mér er barnið mitt auðvitað fyrsta flokks en með þessum reglum fæ ég þau skilaboð frá stjórnvöldum að hún sé annars flokks vegna þess að vinkona mín, sem eignast barn í næstu viku, fær allt að 130 þúsund krónum hærri greiðslu á mánuði en ég.

Ég skil að einhvers staðar þurfi að draga mörkin og þar er mikilvægt að við, foreldrarnir, drögum mörkin. Það er mikilvægt að mitt barn fái aldrei þau skilaboð að það sé annars flokks, jafnvel þó ég fái þau skilaboð.

Að mínu mati ætti breyting sem þessi að taka gildi um áramót eins og venja ber til og hefur tíðkast. Ef ákvörðun er tekin um að hækkunin taki gildi frá annarri tiltekinni dagsetningu þá ætti hún að gilda fyrir alla þá sem eiga eftir að þiggja greiðslur frá sjóðnum frá gildistöku reglugerðarinnar.

Árni Páll Árnason gerði breytinguna að umtalsefni á Alþingi í dag og ég vil vitna í hann. „Hvaða rugl er þetta?".

Í dag braut Unnur Brá Konráðsdóttir í blað í sögu Alþingis þegar hún gaf barni sínu brjóst í ræðustóli og sendi þar með þeim mæðrum, sem heima sitja og reyna að halda öllu gangandi og vilja með engu móti missa af börnum sínum vegna vinnu og skyldna, mikilvæg og góð skilaboð. Ég vænti þess að þeir sem hafa fjárveitingarvald og hinn ágæti ráðherra Eygló Harðardóttir nái því í gegn að jafnrétti ríki um greiðslur úr fæðingarorlofssjóði svo að börn séu ekki dregin í dilka eins og nú er gert við sauðfé landsins.

Ég finn til með þeim konum sem eru á steypinum með krosslagðar lappir að vonast til þess að barnið þeirra komi ekki í heiminn fyrr en eftir miðnætti á föstudag.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×