„Hauck & Aufhäuser var leppur það er alveg augljóst“ Þorbjörn Þórðarson skrifar 25. maí 2016 20:00
Í undirbúningi er þingsályktunartillaga um sérstaka rannsókn á aðkomu þýska bankans Hauck & Aufhäuser að einkavæðingu Búnaðarbankans. Tilefnið er bréf umboðsmanns Alþingis. Bankinn virðist hafa verið fjármagnaður af Kaupþingi banka til að auðvelda sameiningu Búnaðarbankans og Kaupþings í maí 2003. Umboðsmaður Alþingis kom fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í gær til að fjalla um nýjar upplýsingar sem hann hefði um aðkomu þýska bankans Hauck & Aufhäuser að einkavæðingu Búnaðarbankans. Í bréfi umboðsmanns segir að embætti umboðsmanns hafi borist nýjar upplýsingar og ábendingar um „hvernig leiða mætti í ljós hver hafi í raun verið þátttaka þýska bankans Hauck & Aufhäuser Privatbankiers KgaA í kaupum á eignarhluta íslenska ríkisins í Búnaðarbanka Íslands hf. á árinu 2003 með aðild hans að Eglu hf.“Málið tekið alvarlega Það gerist ekki á hverjum degi að umboðsmaður Alþingis sendi bréf af þessu tagi og er það nokkuð óvenjulegt raunar. Þess vegna tekur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd málið mjög alvarlega. Þegar Búnaðarbankinn var einkavæddur var Davíð Oddsson forsætisráðherra og Halldór Ásgrímsson heitinn utanríkisráðherra. Í bréfi umboðsmanns segir: „Tek ég fram að í þeim upplýsingum sem ég hef kynnt mér kemur ekkert fram sem gefur ástæðu til að ætla að þeir sem af hálfu ríkisins tóku ákvörðun um og unnu að sölu á umræddum eignarhluta þess hafi haft vitneskju um þau atriði sem koma fram í þeim upplýsingum sem ég hef vísað til hér að framan.“ Í bréfi umboðsmanns er mælt með rannsókn má máli en fyrirvari er um það að rétt sé að hún snúi að þessum afmarkað þætti málsins enda hafa bæði rannsóknarnefnd Alþingis og Ríkisendurskoðun fjallað almennt um einkavæðingu bankanna, 2002 og 2003. „Aðalatriðið fyrir mig er að ef stjórnvöld hafa verið blekkt á sínum tíma og gert samning sem var ekki í samræmi við það sem um var samið þá er það auðvitað mál sem eðlilegt er að upplýsist,“ segir Brynjar Níelsson sem situr í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson. Í bréfi umboðsmanns kemur fram að ekkert bendi til þess að þeir sem hafi tekið ákvörðun um sölu á kjölfestuhlut í Búnaðarbankanum hafi búið yfir þeim upplýsingum sem hann hefur um aðkomu þýska bankans Hauck & Aufhäuser að einkavæðingu Búnaðarbankans.Vilhjálmur Bjarnason alþingismaður hefur fylgst með þessu máli frá fyrsta degi og setti í raun fram kenningu í ársbyrjun 2006 að þýski bankinn hefði verið leppur og verið fjármagnaður af Kaupþingi. „Hauck & Aufhäuser var leppur það er alveg augljóst,“ segir Vilhjálmur. Fyrir hvern? „Ég ætla ekki að segja það núna. Það er ákveðinn hópur sem þar kom að. Það verður leitt í ljós þessari rannsókn sem vonandi fer af stað.“ Gögn benda til þess að Kaupþing hafi í reynd fjármagnað þýska bankann við kaup á hlut í Búnaðarbankanum snemma árs 2003. Nokkrum mánuðum síðar sameinuðust Kaupþing og Búnaðarbankinn og úr varð KB banki. Hauck & Aufhäuser hafði aldrei afskipti af eignarhlut sínum í Búnaðarbankanum og skipaði íslenskan starfsmann eignarhaldsfélags Ólafs Ólafssonar í stjórn Eglu en þýski bankinn átti hlut sinn í gegnum það félag. Rúmum tveimur árum eftir að Hauck & Aufhäuser keypti hlut sinn í Búnaðarbankanum í gegnum Eglu hafði bankinn framselt hlutabréfin til annarra aðila innan S-hópsins svokallaða en um var að ræða hóp fjárfesta sem leiddur var af Finni Ingólfssyni fyrrverandi ráðherra og Ólafi Ólafssyni. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis er með þingsályktun í undirbúningi um rannsókn á málinu samkvæmt upplýsingum fréttastofu en nefndin tekur ábendingu umboðsmanns alvarlega. Talið er að slík rannsókn gæti tekið stuttan tíma, kannski átta til tólf vikur og yrði hún ekki kostnaðarsöm fram úr hófi fyrir ríkissjóð. Ekki stendur til að skipa sérstaka rannsóknarnefnd Alþingis í samræmi við lög um rannsóknarnefndir. Ólafur Ólafsson fjárfestir.Neitar því að þýski bankinn hafi verið leppur Fréttastofan náði tali af Ólafi Ólafssyni í dag en hann var aðaleigandi Eglu hf. Ólafur er að jafna sig eftir þyrluslys. Hann hefur verið útskrifaður af spítala og meiðsli hans eru ekki alvarleg. Ólafur vildi ekkert láta hafa eftir sér um málið. Hann neitaði því að þýski bankinn hefði verið leppur. Hann sagðist jafnframt ekkert vilja tjá sig um hvort Kaupþing hefði fjármagnað þýska bankann á sínum tíma. Ólafur vísaði til minnisblaðs Ríkisendurskoðunar frá 28. mars 2006. Í minnisblaðinu er vitnað til álits Stefáns Svavarssonar löggilts endurskoðanda og dósents við HR á því hvort unnt væri að fullyrða að þýski bankinn hafi ekki fjárfest í Eglu. Í minnisblaði Ríkisendurskoðunar segir: „Eftir að hafa reifað málið kemst Stefán að þeirri niðurstöðu að ekki sé hægt að fullyrða með því að rýna einungis í reikningsskil þýska bankans fyrir árið 2003 að hann hafi ekki fjárfest í Eglu hf. á árinu 2003. Það gagnstæða eigi raunar einnig við, þ.e. þess sjást ekki merki með beinum hætti að bankinn hafi fjárfest í fyrirtækinu.“ Þetta hrekur í engu það sem Vilhjálmur Bjarnason hefur sagt. Ef eitthvað er það til þess fallið að styðja málflutning Vilhjálms. Í minnisblaðinu er hins vegar einnig vitnað til skýringa þýska bankans sjálfs. „Skal tekið fram að bankinn hefur greint frá því að þar sem hann hafi staðið að öllu varðandi kaupin á hlutabréfunum í Eglu hf. í samræmi við gildandi lög og reglur í Þýskalandi hafi hann ekki átt í neinum sérstökum bréfaskiptum við þýska fjármálaeftirlitið, enda sérstök bréfaskipti óþörf þegar svo stendur á.“ Ekkert í þessu minnisblaði hrekur þá staðhæfingu að Kaupþing hafi fjármagnað kaup þýska bankans á Búnaðarbankanum gegnum félagið Eglu hf.
Alþingi Salan á Búnaðarbankanum Mest lesið Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Lok, lok og læs hjá Gló Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Viðskipti innlent Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira