Viðskipti innlent

„Bankarnir auka vaxtamun og heimilin verða af hundruðum milljóna“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Seðlabankinn lækkaði stýrivexti úr 6% í 5,75% þann 5. nóvember sl. en þeir höfðu verið óbreyttir í um tvö ár.
Seðlabankinn lækkaði stýrivexti úr 6% í 5,75% þann 5. nóvember sl. en þeir höfðu verið óbreyttir í um tvö ár. vísir
Stóru viðskiptabankarnir þrír hafa nú allir lækkað vexti sína í kjölfar ákvörðunar Seðlabankans um að lækka stýrivexti í byrjun nóvember en þetta kemur fram í fréttabréfi VR.

„Það er gott og blessað. En bankarnir gripu hins vegar tækifærið og juku vaxtamuninn - innlán skila nú minni ávinningi og útlán lækka ekki eins mikið og efni standa til. Afleiðingarnar eru þær að heimilin í landinu verða af hundruðum milljóna króna,“ segir í bréfinu.

Seðlabankinn lækkaði stýrivexti úr 6% í 5,75% þann 5. nóvember sl. en þeir höfðu verið óbreyttir í um tvö ár.

„Í kjölfar breytinga á stýrivöxtum Seðlabankans má ætíð vænta þess að vaxtatöflur viðskiptabankanna taki breytingum - sem reyndist líka raunin í þetta skipti. Þegar líða tók á nóvember lækkuðu bæði innláns- og útlánsvextir allra stóru bankanna þriggja.“

Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR og höfundur bréfsins, telur það hins vegar vekja athygli að innláns- og útlánsvextir hafi ekki takið sömu breytingum.

Ólafía B. Rafnsdóttir.
„Þannig lækkuðu innlánsvextir um 0,3% stig hjá Arion banka en útlánsvextir aðeins um 0,2% stig. Hið sama er uppá teningnum hjá Landsbankanum, þar lækkuðu innlánsvextir um 0,25% stig en útlánsvextir aðeins um 0,15% stig. Íslandsbanki lækkaði vexti á innlánum sínum um 0,3% stig og útlánsvexti um 0,25% stig.“

Vaxtamunur eykst um:

Arion banki 0,10%

Landsbankinn 0,10%

Íslandsbanki 0,05%

Hagfræðingur VR hefur reiknað út áhrifin af þessum breytingum. 

„Tekjur bankanna aukast um tæplega milljarð króna vegna þessara breytinga, gróflega áætlað. Seðlabankinn áætlar að um þriðjungur inn- og útlána bankanna séu til heimilanna í landinu sem verða því af hundruðum milljóna króna.“ 

Vextir bankanna hafa tekið breytingum þó stýrivextir Seðlabankans hafi haldist óbreyttir.

„Vaxtamunur Arion banka hefur til að mynda aukist um 0,20% bara á árinu 2014, hjá Landsbankanum og Íslandsbanka hefur hann aukist um 0,15%. Sjá hér töflu sem sýnir breytingar á vöxtum bankanna á þessu ári.“ 

Í fréttabréfi VR segir því næst að bankarnir hafi þannig allir breytt vaxtatöflum sínum án þess að stýrivextir Seðlabankans hafi tekið breytingum. 

„Þegar stýrivextir lækkuðu hins vegar nú í byrjun nóvember nýttu bankarnir tækifærið og juku enn mun á útláns- og innlánsvöxtum. Við hljótum að spyrja á hvaða forsendum bankarnir tóku þessa ákvörðun? Það er erfitt að sjá að það hafi verið í þágu okkar viðskiptavinanna. Fyrirheit um aukinn kaupmátt launafólks verða að engu þegar bankarnir geta með einu pennastriki tekið ávinning vaxtalækkana til sín á þennan hátt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×