Fótbolti

„Bale þyrfti áratug til að ná tungumálakunnáttu Alfreðs“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Frá því að Alfreð Finnbogason flutti til Spánar í sumar hefur hann náð undraverðum tökum á spænska tungumálinu.

Alfreð samdi við Real Sociedad eftir að hafa dvalið í Hollandi í tvö ár en aðeins fáeinum vikum eftir að hann samdi við félagið var hann byrjaður að tala á spænsku við fjölmiðla ytra.

Jón Sigurður Eyjólfsson, blaðamaður og pistlahöfundur í Fréttablaðinu, býr á Spáni og segir að Alfreð tali betri spænsku en margir erlendir leikmenn í spænsku úrvalsdeildinni. Í þeirra hópi er Gareth Bale, Walesverjinn sem hefur verið í herbúðum Real Madrid í rúmt ár.

„Bale þyrfti áratug til að ná sama árangri í spænskunni,“ sagði Jón Sigurður í léttum dúr.

Hér fyrir neðan geta áhugasamir séð Alfreð spreyta sig í spænskunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×