Innlent

„Áttum að klæðast flegnu og stuttum pilsum“

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Jóna María Hafsteinsdóttir og Þorsteinn Steingrímsson
Jóna María Hafsteinsdóttir og Þorsteinn Steingrímsson vísir/stefán/aðsend
Starfsfólk í auglýsingadeild sjónvarpsstöðvarinnar iSTV var beðið um, af Þorsteini Steingrímssyni, stjórnarformanni félagsins, að breyta klæðaburði sínum til þess að landa fleiri auglýsingum. Samkvæmt fyrrum starfsmanni auglýsingadeildar áttu þær að fara í háhælaða skó, stutt pils, hneppa vel að og setja brjóstin út. Mbl.is greindi frá þessu.

„Þetta gerðist á fundi í lok ágúst með honum og samstarfskonu minni,“ segir Jóna María Hafsteinsdóttir, fyrrum starfsmaður iSTV. „Hann vildi meina að okkur myndi ganga mun betur að selja auglýsingar á þann hátt. Í byrjun september fengum við einfaldlega nóg og gengum út.“

„Það sem skiptir hins vegar meira máli en brjóstin mín er framkoma hans gagnvart sjónvarpsstöðinni og fólkinu sem vann þar. Þetta átti að vera grasrótarstöð fyrir ungt fólk til að koma sér á framfæri en honum tókst, upp á sitt einsdæmi, að keyra stöðina í þrot.“

„Ég notaði þetta sem líkingamál,“ segir Þorsteinn Steingrímsson aðspurður um málið. „Þegar þú ert að reyna að koma fjölmiðli í loftið þá gengur ekki að sitja bara á skrifstofu og aðhafast ekkert. Þú þarft að fara út meðal fólks og landa auglýsingum á þann veg og þá er betra að líta ágætlega út.“

Þorsteinn segir að umræddir starfsmenn hafi komið til iSTV frá Morgunblaðinu og Fréttablaðinu og ætlað að halda áfram með þá starfshætti sem þar tíðkast. Það sé hægt á marggjaldþrota miðlum en ekki á nýjum miðli á markaðnum.

„Þegar lagt var af stað í þessa vegferð var ætlunin að þáttargerðarfólkið reddaði auglýsingum í þá þætti sem það sæi um. Þær breyttu því fyrirkomulagi og fengu alltof há laun án þess að selja svo mikið sem eina auglýsingu.“

Hann bætir við að þær hafi labbað út og skilið eftir sig sviðna jörð. Ef þær hefðu vott af sómatilfinningu myndu þær skila laununum sínum til þáttagerðarfólksins sem hefðu unnið baki brotnu og skilað efni til stöðvarinnar. Þær hafi hins vegar ekki skilað neinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×