Amerískar smákökur

Vísir Jólavefur 01. nóvember 2011 03:13
Þessar amerísku smákökur sendi Björg Hilmisdóttir.

Amerískar smákökur

150 gr smjör
200 gr púðursykur
1 pk Royal vanillubúðingur
2 tsk vanilludropar
2 egg
275 gr hveiti
1 tsk lyftiduft
150 gr Suðusúkkulaði, brytjað gróft
100 gr salthnetur saxaðar

Smjöri, púðursykri, búðingsdufti og vanilludropum hrært vel saman. Eggjum bætt út í einu í senn og hrært vel á milli. Hveiti og lyftiduft sigtað og hrært varlega saman við. Að síðustu er súkkkulaðinu og hnetunum blandað varlega saman við.

Búið til nokkuð stórar kökur með teskeið og setjið á bökunarplötu. Uppskriftin gerir um það bil 32 smákökur. Bakað við 180°C í 12-17 mín.

Fleiri fréttir - Jólavefur

Þú ert hér: Forsíða / Jólavefur / Amerískar smákökur