Lífið

„Albert, grjóthaltu kjafti“

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Sjálfstæðismaðurinn Albert Guðmundsson fór hamförum á stod2frettir-snappinu í gær og sló þar botn í Snapchat-innlit fréttastofunnar í kosningabaráttu flokkanna.

Ljóst er af myndbandinu hér að ofan að Alberti er margt til lista lagt; ekki einungis er honum í lófa lagið að keyra rauðan skrjóð á milli kosningafunda heldur er fátt sem hann getur ekki gripið með munninum og þá er hann einstaklega fær með krítina eins og áhorfendur fengu að kynnast í gær.

Þá komu fjölmargir aðrir við sögu. Dansandi og ógnvekjandi framkvæmdastjóri, kjaftfor Guðlaugur Þór og „víkinga-dabandi“ kosningastjórar.

Þetta og meira til má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×