Innlent

„Áhugavert að upp úr 1900 hafi menn verið að búa til svo öfluga kafbáta“

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Sænskir fjölmiðlar telja kafbátinn líkjast þessum.
Sænskir fjölmiðlar telja kafbátinn líkjast þessum. Wikimedia
„Það hefur verið í gangi í tvö ár að finna einmitt þetta flak og komast að því að kafbáturinn væri í raun til,“ segir Kristján Eldjárn, framkvæmdastjóri Ixplorer íslenska fyrirtækisins sem fann kafbát undan ströndum Svíþjóðar í gær. Fundurinn var unninn í samstarfi við sænska fyrirtækið Ocean X team.

Kristján telur fjölmiðla þurfa að hafa varann á varðandi fréttaflutning af málinu, ýmislegt hafi verið fullyrt en rannsókn á kafbátnum sé ekki lokið. Hann nefnir þar samsæriskenningar í fjölmiðlum um að báturinn sé í raun aðeins nokkurra ára gamall og að hann tengist sænska hernum.

„Það er ekki búið að greina flakið með neinum öruggum hætti né ákveða hvað verður gert við það.“ Hann segir háð yfirvöldum í hverju landi fyrir sig og samningum fyrirtækjanna við yfirvöld hvað gert verður við flakið.

Yfir hundrað ára gamalt flak

„Við vitum að þetta er mjög gamalt flak, yfir hundrað ára og hefur verið á hafsbotni í hundrað ár,“ segir Kristján. „Auðvitað er áhugavert að upp úr 1900 hafi menn verið að búa til svo öfluga kafbáta. Það finnst mér mjög spennandi við þetta verkefni, að vita hverjir voru svona flinkir árið 1903 eða 1904.“

Kristján segir að þrátt fyrir að ekki hafi verið skorið úr um stærð flaksins að svo stöddu geti fullyrðingar í fjölmiðlum um að hann sé tuttugu metrar að lengd og þrír á breidd reynst nærri lagi.

Fjársjóðsleitarfyrirtækið íslenska

Kristján segir flakið fyrst og fremst hafa gildi til sýningar og rannsókna. Hann segist ekki geta gefið upplýsingar um hvers vegna fyrirtækin tvö hafi tekið að leita að kafbátnum eða hvaðan upplýsingar um flakið fengust.

Hann segist í raun ekki mikið geta sagt um fundinn að svo stöddu þar sem yfirvöld í Svíþjóð fái allar upplýsingar fyrst og stjórni því hvenær upplýsingarnar eru gerðar opinberar þar sem kafbáturinn fannst í sænskri landhelgi.

Fyrirtækið Ixplorer tekur að sér allskonar botnverkefni svokölluð en þar er átt við rannsóknir á hafsbotni. Það sérhæfir sig í leit að fjársjóðum og skipsflökum á hafsbotni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×