Innlent

„Afsökunarbeiðnin móttekin og samþykkt. Þakka þér fyrir Helgi minn“

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur beðið Birgittu Jónsdóttur, samflokksmann sinn, sem og aðra Pírata afsökunar á sínum þætti í óróanum sem gætt hefur innan raða flokksins að undanförnu.

Þá viðurkennir Helgi að lítið talsamband hafi verið á milli hans og Birgittu á tímabili sem hafi síst verið til þess fallið að draga úr kergjunni.

Sjá einnig: Helgi Hrafn segir að þurfi að leysa samskiptavanda innan Pírata

Í þríþættri afsökunarbeiðni sem hann birtir á Pírataspjallinu á Facebook rekur Helgi þau mál sem helst hafa staðið Pírötum fyrir þrifum að undanförnu og fjölmiðlar gert sér mat úr – svo sem meintum samskiptavanda innan Pírata og innanflokkságreiningi um stutt kjörtímabil.

Helgi biður Pírata afsökunar á því að hafa dýpkað misskilning um tilhögun næsta kjörtímabils í sambandi við stjórnarskrána. „Mér hafði skilist á öllum sem ég hafði talað við um málið, að upprunaleg tillaga hefði verið sú að á næsta kjörtímabili myndum við einungis fara í tvö mál, þ.e. ESB-umsóknina og stjórnarskrána og gera þetta á stuttu kjörtímabili, nánar til tekið á 6-9 mánaða tímabili,“ segir Helgi.

Sjá einnig: Birgitta óttast að fylgið þurrkist út og reynir að berja í brestina

Hann segist hafa haldið að sú tillaga hafi verið felld í staðinn hefði verið samþykkt að leggja fókus á þessi tvö mál án skilyrðis um stutt kjörtímabil og án þess að fjalla einungis um þessi tvö mál.

Afsökunarbeiðni Helga er þríþætt.
Birgitta gangrýndi þessa túlkun Helga í gær sem hún sagði vera stórkostlega mikla rangfærslu.

Sjá einnig: Birgitta sakar kafteininn um stórkostlega mikla rangfærslu

Helgi gengst við þessari gagnrýni og segir að orðalagið í ályktun flokksins hafi boðið misskilningnum heim. „Ég get tekið á mig ábyrgð á því að hafa misskilið þetta upprunalega og sömuleiðis að í kjölfarið dreift út einhverjum misskilningi um þetta. Ég bið sjálfan mig afsökunar á því, en flokkinn afsökunar á því að hafa dýpkað misskilninginn frekar en valda því að hann skerptist.“

Þá biður Helgi samflokksmann sinn Birgittu afsökunar á orðum sem hann lét falla í samtali við Morgunblaðið á dögunum. Þar ræddi hann um beitingu valds og töldu margir að hann beindi þar orðum sínum að Birgittu. „Um leið og ég sá umræðuna í kjölfarið fór ég að velta fyrir mér hvort ég skuldaði henni afsökunarbeiðni og hefði hlaupið fram fyrir mig, en þá var ég ennþá svo gríðarlega reiður að mér fannst þetta einhvern veginn þurfi,“ segir Helgi og viðurkennir að það hefði verið betri að ræða málið fyrst við Birgittu – „en satt best að segja var á þeim tíma ekki talsamband milli okkar, sem er eitthvað sem við höfum reynt að laga síðan þá,“ segir Helgi.

Sjá einnig: Birgitta biðst afsökunar á sínum hlut í deilum innan Pírata

„Hitt er að ég stend við að við þurfum að ræða hvernig við ætlum að fara með vald, og það beinist ekki einungis að Birgittu Jónsdóttur. Ég hef líka stundum farið óvarlega með vald sjálfur og vil endilega að við höldum þeirri umræðu áfram, en þá frekar í góðu rúmi þar sem við getum tekið málið fyrir með sem minnstri hættu á deilum,“ segir hann ennfremur.

Að endingu biður hann Helgi Birgittu afsökunar á því að hafa ekki farið varlegar í fjölmiðlum en eins og greint hefur verið frá bað Birgitta hann um að ræða ekki ágreiningsmál flokksins á opinberum vettvangi.

„Það mistókst greinilega vegna ólíks skilnings á því hvernig hafi farið á síðasta aðalfundi og nákvæmlega hvert eðli tillögunnar sé sem samþykkt var. Ég vil biðja hana afsökunar á því að hafa ekki farið varlegar í fjölmiðlum. Ég reyndi en það mistókst og það er á mína ábyrgð.

Ljóst er að færsla Helga hefur fallið í kramið hjá Birgittu sem skrifar við: „Afsökunarbeiðnin móttekin og samþykkt. Þakka þér fyrir Helgi minn“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×