Innlent

Meðferð útgáfufélags DV á tölvupóstum fyrrum starfsmanna ekki í samræmi við persónuverndarlög

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Reynir Traustason, fyrrverandi ritstjóri DV, og Sigurður G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður.
Reynir Traustason, fyrrverandi ritstjóri DV, og Sigurður G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður. vísir/anton brink
„Þetta er afdráttarlaust lögbrot af hálfu forráðamanna DV og Sigurðar G. Guðjónssonar sem var auðvitað lykilpersóna í öllu leikritinu,“ segir Reynir Traustason, fyrrverandi ritstjóri DV, um úrskurð Persónuverndar í máli hans og tveggja annarra fyrrum starfsmanna miðilsins.

Niðurstaða Persónuverndar er sú að meðferð útgáfufélags DV á tölvupósthólfum Reynis Traustasonar, Heiðu B. Heiðars og Jóns Trausta Reynissonar hafi ekki verið í samræmi við persónuverndarlög.

Þremenningarnir kvörtuðu til Persónuverndar þann 21. nóvember í fyrra. Varðaði kvörtunin annars vegar notkun á tölvupósthólfi þeirra eftir að þau létu af störfum hjá DV og hins vegar miðlun og birtingu persónuupplýsinga af hálfu Sigurðar G. Guðjónssonar, hæstaréttarlögmanns, á persónuupplýsingum um Reyni Traustason.

Tölvupóstur áframsendur á annað starfsfólk

Kvörtunin sem tekur til meðferðar tölvupósthólfsins varðar meðal annars það að starfsmönnunum hafi ekki verið gefið færi á að skoða tölvupósthólf sín hjá DV eftir að þau hættu störfum.

Þá var jafnframt kvartað yfir því að pósthólfin þeirra væru enn opin og að einkapóstur „hafi verið áframsendur á annað starfsfólk DV ehf. og hann opnaður, skoðaður og eftir atvikum að efni sem þar hafi verið að finna hafi verið vistað og afritað og /eða áframsent án samþykkis til þriðja aðila.“

Fallist er á það af hálfu Persónuverndar að með þessu hafi lög um persónuvernd verið brotin. Persónuvernd leggur það fyrir DV að staðfesta með skriflegum hætti að pósthólfum kvartenda hafi verið lokað. Þá þarf útgáfufélagið einnig að sýna fram á að þremenningunum hafi verið gefinn kostur „á að yfirfara pósthólf sín og eftir atvikum eyða eða áframsenda einkatölvupóst sinn, sem hefur borist á netföng þeirra.“

Mun kæra þjófnað á handriti til lögreglu

Kvörtun varðandi miðlun persónuupplýsinga um Reyni Traustason var hins vegar vísað frá. Sneri kvörtunin annars vegar að því að Sigurður G. hafi birt myndir af drögum að ævisögu Reynis Traustasonar á Facebook og hins vegar að hann hefði sent drögin á Björn Leifsson, eiganda World Class. Samkvæmt heimildum Vísis var öllu sem varðaði Sigurð G. í þessu máli vísað frá Persónuvernd.

Reynir taldi að Sigurður hefði brotið gegn ákvæði stjórnarskrár um tjáningarfrelsi með birtingu myndanna á Facebook en Persónuvernd segist í úrskurði sínum ekki taka afstöðu til þess ákvæðis. Þá falli tölvupóstsendingin til Björns Leifssonar undir fjarskiptalög og geti Reynir því kvartað til Póst- og fjarskiptastofnunar vegna póstsins.  

Aðspurður hver næstu skref eru segir Reynir að Póst-og fjarskiptastofnun muni væntanlega taka málið fyrir en svo hyggst hann kæra þjófnaðinn á handritinu til lögreglunnar.


Tengdar fréttir

„Þessi gata verður farin til enda“

Reynir Traustason hefur leitað til Persónuverndar eftir að Sigurður G. Guðjónsson birti kafla úr væntanlegri sjálfsævisögu Reynis á Facebook-síðu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×