Innlent

„Ætla að taka Breivik á þetta“

Atli Ísleifsson skrifar
Maðurinn er ákærður fyrir líkamsárás, brot gegn valdstjórninni, fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot.
Maðurinn er ákærður fyrir líkamsárás, brot gegn valdstjórninni, fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot. Vísir/Róbert
Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann á sextugsaldri fyrir að hafa haft í frammi ógnandi framkomu og hótað sýslumanninum í Keflavík og öðrum starfsmönnum sýslumannsembættisins líkamsmeiðingum og lífláti á skrifstofu embættisins í Keflavík í marsmánuði 2012.

Í ákærunni kemur fram að maðurinn hafi sagst „þurfa að taka Breivik á þetta“ og ætla að koma síðar á skrifstofuna með skotvopn og „ætla að taka Breivik á þetta“. Vísar hann þar í fjöldamorð Norðmannsins Anders Behring Breivik sem myrti 77 manns í sprengjuárás í miðborg Óslóar og í skotárásum á Útey þann 22. júlí 2011.

Maðurinn er einnig ákærður brot gegn valdstjórninni fyrir að hafa streist á móti við handtöku og slasað tvo lögreglumenn með því að veita öðrum þeirra þungt högg í andlitið með olnboga vinstri handar „með þeim afleiðingum að hliðrun varð á nefbeinum hans til hægri“ og svo slegið hinn með þeim afleiðingum að hann hlaut 0,5 sentimetra sprungu við hægra munnvik og fjölmargar rispur á handlegg.

Maðurinn er jafnframt ákærður fyrir líkamsárás sem hann framdi í aprílmánuði 2013. Í ákærunni segir að hann hafi slegið konu „í andlitið þannig að hún féll í gólfið og rifið í hár hennar, með þeim afleiðingum að hún hlaut bólgu og þreyfieymsli við hægra auga, bólgu yfir hægra gagnauga og bólgu við vinstra auga og upp í hársvörð.“

Loks er maðurinn ákærður fyrir fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot þar sem 30 grömm af kannabisefnum fundust við húsleit á heimili hans ásamt 91 sentimetra langt spjót með 17 sentimetra löngu hnífsblaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×