Lífið

Hallie Berry opnaði sig

hæfileikarík Hallie Leikkonan er ósátt við stöðu hörundsdökkra kvenna í kvikmyndabransanum. fréttablaðið/nordicphotos
hæfileikarík Hallie Leikkonan er ósátt við stöðu hörundsdökkra kvenna í kvikmyndabransanum. fréttablaðið/nordicphotos

Hallie Berry opnaði sig nýlega og sagðist alltaf hafa þurft að berjast harðar fyrir tilverurétti sínum innan kvikmyndageirans heldur en hvítar kynsystur hennar. Leikkonan, sem er fjörutíu og átta ára og með glæstan feril að baki, sagði jafnframt að flóknara væri að vera af blönduðum uppruna heldur en hreinlega að eldast í bransanum. Hallie Berry er þekktust fyrir leik sinn í myndum eins og X-Men, Catwoman og Monster’s Ball. Hún var jafnframt fyrsta hörundsdökka konan til að hljóta Óskarsverðlaun fyrir leik í aðalhlutverki fyrir þá síðast nefndu árið 2002.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×