Tónlist

Koma saman um jólin

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Síðastliðin þrjú ár hefur Hjaltalín haldið tónleika á Rosenberg á milli jóla og nýárs. Tónleikahaldið fer að verða ein af jólahefðunum. „Við erum mörg í hljómsveitinni og öll á kafi í alls kyns verkefnum,“ segir Sigríður Thorlacius, söngkona Hjaltalín.

„Það er svo mikið að gera hjá öllum og tveir meðlimir hljómsveitarinnar eru með annan fótinn erlendis. En yfir jólin eru allir heima og þá er gaman að geta skellt í tónleika.“ Sigríður segir fólk spyrja hvort Hjaltalín sé hætt en hún segir það vera fjarri.

„Við förum að undirbúa vinnu á nýju efni á komandi ári. Við viljum ekki endalaust vera að spila bara til að spila, en það gefur okkur mikið að hittast. Það er alveg ákveðin stemning sem fylgir því að syngja með Hjaltalín og ég sakna þess oft. Hljómsveitin er á margan hátt nær hjartanu en annað, þetta er eins og að vera heima hjá sér.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×